Knattspyrnudeild

Hilmar Sigurðsson: "Fótboltinn skapar skemmtilega stemningu hér í bænum"

22.1.2012

Hilmar Sigurðsson er formaður knattspyrnudeildar Gróttu og hefur gegnt því embætti í heil 10 ár. Í formannstíð Hilmars hafa ýmsir áfangar í starfi knattspyrnudeildarinnar unnist, bæði hjá meistaraflokki og yngri iðkendum, og er Hilmar bjartsýnn á framtíð félagsins. Fréttamaður Gróttusport settist niður með formanninum fyrir stuttu og spurði margs um starfið, uppgangiinn, fallið og framtíðina hjá knattspyrnudeild Gróttu.

Hver er Hilmar S. Sigurðsson ?

Ég er 48 ára stoltur Seltirningur menntaður viðskiptafræðingur með MBA frá H.Í. Rek mitt eigið fyrirtæki og er giftur Þórdísi Sigurðardóttur flugumferðarstjóra. Við eigum þrjú börn, Guðbjörgu 21 árs sem er í háskólanámi í klassískum söng í USA, Jóhannes 19 ára nemandi í MR og leikmaður meistaraflokks Gróttu og Hildi Sif sem er 12 ára nemandi í Való og æfir fótbolta með 4 flokki. Ég hef alltaf haft mikla ástríðu fyrir fótbolta og nýt þess að vera á öllum heimleikjum hjá Gróttu á sumrin á einum af fallegri stöðum landsins. Fyrir utan að vera mikill Gróttumaður þá er ég harður stuðningsmaður Liverpool þrátt fyrir að börnin styðji Man Utd, þar fór eitthvað úrskeiðis í uppeldinu.

 

Hvað táknar S-ið í nafninu þínu?

S-ið stendur fyrir Steinar og ég hef aldrei notað þetta millinafn. Móðir min kallaði mig þó alltaf Hilmar Steinar og kallar mig enn.  Ég átti nefnilega að vera stúlka og heita Steinunn en það gekk ekki alveg eftir þannig að ég fékk nafnið Hilmar Steinar.


 

Nú hefur þú tekið þátt í starfi knattspyrnudeildar Gróttu frá 2002 og verið formaður í 10 ár. Hvað kom til að þú fórst að beita þér í málum knattspyrnudeildarinnar?

Ég flutti á Nesið 1996 þegar Jóhannes sonur minn var 4 ára. Hann sýndi fótboltanum  strax mikinn áhuga  og ég byrjaði að mæta á æfingar með honum á laugardagsmorgnum. Fljótlega fór ég að taka þátt í starfinu í foreldraráði og þetta endaði svo með því að mér var boðið að taka að mér formennsku í stjórn knattspyrnudeildar. Sé aldeilis ekki eftir þeirri ákvörðun enda kynnst skemmtilegu fólki og eignast marga góða vini í gegnum starfið hjá deildinni.

 Strákarnir með bikarinn

"Nú erum við með um 300 iðkendur, öflugan meistaraflokk og eina bestu aðstöðu landsins til knattspyrnuiðkunar"


 

Ertu sáttur með það starf sem hefur áunnist í þinni formannstíð?

Ég er mjög sáttur og það hefur margt áunnist á þessum 10 árum sem ég hef starfað.  Ég hef verið svo lánsamur að fá til liðs við mig góða stjórnarmenn sem hafa unnið gríðarlega öflugt starf fyrir félagið og eiga mikinn þátt í að deildin hefur vaxið og dafnað. 

Mig minnir að iðkendur hafi verið um 100 árið 2001 og enginn starfandi meistaraflokkur hjá félaginu -strákarnir týndust úr fótboltanum þegar komið var í menntaskóla. Nú hefur orðið mikil breyting þar á en síðustu tvö ár hefur 2. flokkur teflt fram A- og B-liði.

Nú erum við með um 300 iðkendur, öflugan meistaraflokk og eina bestu aðstöðu landsins til knattspyrnuiðkunar. Ekki má heldur gleyma stelpunum en kvennaboltinn í Gróttu hefur vaxið gríðarlega síðustu ár og nú erum við með 3-7. flokk kvenna á mikilli uppleið. Að lokum verð ég að nefna þá öflugu og metnaðarfullu foreldra sem eru hér á Nesinu, tilbúnir styðja vel við starfið í yngri flokkunum. Án þeirra væri ekki hægt að fara á öll þessi mót og keppnisferðir.


 

Eftir hrunið 2008 standa mörg íþróttafélög illa fjárhagslega og hafa ansi mörg félög safnað miklum skuldum síðustu misseri. Hvernig stendur knattspyrnudeild Gróttu í þessu samhengi? 

 

Við höfum alltaf farið varlega í fjármálum og höfum rekið starfið þannig að við höfum ekki verið i tapi með reksturinn. Við höfum ekki safnað skuldum og iðulega verið skuldlausir. Núverandi stjórnarmenn hafa staðið sig hreint frábærlega í að afla deildinni styrkja og vinna mikið óeigingjarnt starf fyrir klúbbinn þannig að við séum alltaf réttu megin við núllið.

 

Sagt er að Grótta hafi eytt lang minnstum peningum af liðunum í 1. deild síðustu tvö ár. Lúrir stjórnin á peningum eins og ormur á gulli?


Nei ég lofa þér því að við liggjum ekki á neinum sjóðum. Það er einfaldlega gríðarlega mikilvægt að vera án skulda og þá sérstaklega í okkar tilfelli þar sem hér á Seltjarnarnesi eru fá fyrirtæki sem geta styrkt starf deildarinnar. Styrktartekjur okkar eru litlar í samanburði við þau félög sem við vorum að spila á móti í 1. deildinni á síðasta ári. Get nefnt sem dæmi Víking Ó og BÍ/Bolungarvík sem eru með öflug útgerðarfyrirtæki og útgerðarmenn á bak við sig og eins KA og ÍA sem fá yfir 1000 stráka og fjölskyldur þeirra á N1- og Norðurálsmótin.

En stjórnin er á fullu að safna peningum allt árið um kring, við seljum skilti á völlinn, höldum þorrablót og nýjasta dæmið er glæsilegt Gróttublað sem var gefið út í desember sl. Þessi vinna er mjög skemmtileg og gefandi en auðvitað tímafrek líka. Það eru allir velkomnir að leggja hönd á plóg, bara hafa samband við okkur og gefa sig fram.

 Magnús skrifar undir

"Stjórnin er á fullu allt árið um kring við að safna peningum"

 

Eins og kunnugt er féll Grótta úr 1. deildinni síðasta haust og leikur í 2. deild næsta sumar. Töluvert áfall fyrir félagið og mikið rætt hvað hafði farið úrskeiðis. Telur þú að stjórnin hafi brugðist? 

 

Við féllum á markatölu og vorum aðeins í fallsæti síðustu 30 mínútur mótsins. Þetta var mjög svekkjandi og stjórnin tók þetta nærri sér líkt og leikmenn og þjálfarar. Ég tel að stjórnin hafi ekki brugðist enda lagði hún sig alla fram að halda sem best utan um starfið og leikmenn Gróttu því liðið þarf að vera sterkt utan vallar sem innan. Það er erfitt að kenna einhverju um þessar ófarir því það lögðu allir mikið á sig, leikmenn, þjálfarar og stjórn. Það sem skiptir máli er að nú verða allir að standa saman og koma liðinu upp aftur í 1. deildina þar sem liðið á heima. 

Menn eru vanir stöðugum  uppgangi hjá meistaraflokknum undanfarin ár. Við unnum okkur úr 3. deildinni í 1. deildina á stuttum tíma og vorum búnir að spila í 1. deildinni í 2 ár. Þar líkaði okkur vel enda öflug deild með sterkum liðum. Eftir fallið þá hafa nokkir leikmenn leitað á önnur mið og við óskum þeim alls hiðs besta og eru þeir alltaf velkomnir aftur í Gróttu.  

Nú erum við að byggja upp liðið fyrir átökin framundan og margir reyndir leikmenn og sannir Gróttumenn ætla að taka slaginn með okkur næsta sumar þannig að kjarninn verður áfram í liðinu. Nú verður líka spennandi að sjá hvort ungu leikmennirnir okkar muni fá tækifæri með meistaraflokknum næsta sumar. Við viljum að ungir og efnilegir leikmenn hjá Gróttu fái tækifæri með meistaraflokki og þá verða þeir líka að standa undir því og sanna sig fyrir alvöru.

 

 

Nú er leikmannamarkaðurinn rauðglóandi í íslenska boltanum og menn að koma og fara hjá öllum liðum. Geturðu sagt okkur hver staðan er í leikmannamálum hjá Gróttu þessa stundina?

 

Við erum að ljúka samningagerð við hluta hópsins sem spilaði með okkur í fyrra og vildum láta þá leikmenn ganga fyrir áður en við förum út á markaðinn af einhverjum krafti. Við skrifuðum strax undir samninga í haust við Enric, Guðmund fyrirliða, Hrafn, Hafsteinn og það var mikilvægt fyrir klúbbinn að þessir sterku leikmenn skyldu skrifa strax undir samning þrátt fyrir fallið. Nýlega hafa fleiri bæst í hópinn, sbr. Bjarna Jakob og Ali. Við eigum von á að fleiri leikmenn  Gróttu skrifi undir samning á næstunni og þá eigum við í viðræðum við nokkra nýja leikmenn.


 

Geturðu nefnt einhver nöfn?

Það er erfitt að gera það á þessu stigi en við erum í viðræðum við nokkra leikmenn sem hafa sýnt Gróttu áhuga og eru jafnvel að æfa með okkur núna. Þá vonum við að erlendu námsmennirnir okkar, Jónmundur og Óli Johnson, geti spilað sem mest næsta sumar. Við vonumst einnig eftir að Steindór og Magnús B verði með ásamt Sölva Davíðs.    

Jöfnunarmarkinu fagnað

"Margir reyndir leikmenn og sannir Gróttumenn ætla að taka slaginn með okkur næsta sumar þannig að kjarninn verður áfram í liðinu."

 

Var aldrei spurning að hafa Sigurð Helgason áfram við stjórnvölin? 

Mörg lið hefðu látið þjálfaran fara, þannig er það í þessum bransa, en i þessu tilfelli mat stjórnin að reynsla Sigurðar myndi nýtast okkur vel í 2 deildinni í sumar. Siggi hefur undanfarin ár verið að byggja upp öflugan hóp ungra leikmanna hjá Gróttu sem eru núna að skila sér upp í meistaraflokkinn. Hann gjörþekkir félagið og leikmenn þess ásamt því að hafa mikinn metnað fyrir að gera vel fyrir klúbbinn. Sigurður sýndi einnig mikinn dug og kjark að vilja halda áfram eftir þetta áfall því stjórnin átti alveg eins von á að hann vildi fara frá klúbbnum en þetta var góð niðurstaða með hagsmuni félagsins að leiðarljósi.

 

Hver er þín framtíðarsýn sem formaður knattspyrnudeildar Gróttu?

 

Mitt markmið hefur verið að efla knattspyrnudeild Gróttu á hverju ári með öfluga stjórnarmenn mér við hlið sem vonandi halda áfram að vinna fyrir klúbbinn næstu árin. Við viljum laða til okkar bestu þjálfarana þannig að iðkendur Gróttu fái sem besta þjálfun. 

Við viljum sjá okkur sem stöðugan 1. deildar klúbb og að við tryggjum áfram góða aðsókn á heimaleikina. Við viljum vera þáttakendur í öflugu forvarnarstarfi á Nesinu fyrir börn og unglinga og gera þeim kleift að stunda íþróttir í góðu samstarfi við ÍTS en um 90%  barna og unglinga Nesinu stunda íþróttir sem er hæsta hlutfall á landinu.

Fótboltinn skapar skemmtilega stemningu hér í bænum þar sem sífellt fleiri eru að vera þátttakendur í starfinu, iðkendur sem og foreldrar.

Grótta er með góða aðstöðu sem við viljum bæta enn frekar með því að laga Valhúsahæðina svo hún geti nýst sem æfingasvæði. Á sumrin er gervigrasvöllurinn sprunginn undan fjölda iðkenda en aukningin í kvennaboltanum hefur gert það að verkum að fleiri leikir og æfingar eru á vellinum.

Kvennaboltann viljum við efla enn frekar og vonandi getum við byrjað með meistaraflokk kvenna innan fárra ára þegar ungu stúlkurnar hjá Gróttu ganga upp í eldri flokka. 

 

Eitthvað að lokum?

Stjórnin er þessa dagana að undirbúa Þorrablót Seltirninga sem verður haldið laugardaginn 28. janúar n.k. í félagsheimilinu. Ég get lofað rífandi stemningu en sala miða gengur vel og væntanlega munu miðar seljast upp í byrjun vikunnar. Vonast til að sjá sem flesta á laugardaginn!

 Jón Sig í stuði

Víðir vs. Grótta 2009


"Til liðs við mig fékk ég góða stjórnarmenn sem hafa unnið frábært starf fyrir knattspyrnudeildina á síðustu árum"

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.