Knattspyrnudeild
Uppskeruhátíð Knattspyrnudeildar Gróttu
Knattspyrna - Yngri flokkar
Sunnudaginn 28.sept kl.13.30 verður uppskeruhátíð knattsyrnudeildar Gróttu haldin í íþróttahúsinu.
Dagskráin verður hefðbundin, allir iðkendur í 6. og 7. flokki fá þátttökuviðurkenningu og viðurkenningar verða veittar fyrir framfarir og ástundun í 5. - 2. flokki.
Að því loknu verður boðið upp á hið margfræga kökuhlaðborð Gróttuforeldra.
Foreldrar, systkini, afar og ömmur og aðrir velunnarar Gróttukrakkanna eru velkomnir á uppskeruhátíðina.
Stjórnin

