Knattspyrnuskóli
Sumarnámskeið fótboltans
Knttspyrnudeild - Yngri flokkar
Knattspyrnudeild verður með knattspyrnuskóla fyrir krakka fædd á árunum 2000 til 2004 en það eru krakkar sem verða í 1.-5. bekk næsta haust. Knattspyrnuskólinn er frá kl. 9:00-12:00 frá mánudegi til föstudags. Margt verður til gamans gert, m.a. munu þekkt andlit kíkja í heimsókn en að auki verða margs konar keppnir s.s. HM, vítakeppni og knattþrautir. Lögð verður áhersla á að kenna grunnþætti knattspyrnunnar með skemmtilegum leikjum og æfingum. Skólastjóri knattspyrnuskólans er Ásmundur Haraldsson, yfirþjálfari knattspyrnudeildar og aðalþjálfari meistaraflokks Gróttu (KSÍ UEFA A) en aðalleiðbeinendur skólans verða þeir Orri Axelsson og Hrund Jónsdóttir ásamt ungum og efnilegum þjálfurum úr 2. og 3. flokki félagsins.
Knattspyrnuskóli Gróttu fyrir krakka í 8.fl., 7.flokki og 6.flokki.
Námskeið 1 7. - 18. júní
Námskeið 2. 21. júní - 2. júlí
Námskeið 3 5. júlí - 16. júlí
Námskeið 4 19. júlí - 30. júlí
Verð kr. 4800. Systkinaafsláttur er 20%.
Innritun fer fram í Selinu dagana 27.- 29. maí í Selinu frá kl. 10:00 - 16:00.
Upplýsingar í síma 5959 177 og 5959 178.
Foreldrar athugið! Börnum er boðið upp á að sameina leikjanámskeið og knattspyrnuskólann og kostar það einungis 8.000 krónur (allur dagurinn). Börn sem eru á leikjanámskeiði og hafa áhuga á að komast í knattspyrnuskólann geta með þessu móti slegið tvær flugur í einu höggi. Þetta tilboð gildir einungis fyrir börn sem eru allan daginn á námskeiðum hjá Seltjarnarnesbæ.
Afreksskóli knattspyrnudeildar
Í sumar verður boðið upp á sérstakan afreksskóla fyrir stráka og stelpur í 5.flokki og 4.flokki en það eru krakkar sem voru að klára 5.-8. bekk í vor. Æft verður 4x í viku fyrir hádegi í 6 vikur. Hægt er að vera á námskeiðinu í viku og viku. Æfingarnar verða að mörgu leyti öðruvísi en hefðbundnar fótboltaæfingar en meðal annars verður farið í tækni, leikfræði, og annað tengt fótboltanum en hverri viku er helgað sérstakt þema. Krakkarnir æfa þá tvisvar á dag með hefðbundnum æfingum en æfing að morgni til gæti verið fyrirlestur eða tækniæfing útá velli. Góðir gestir og atvinnumenn munu koma í heimsókn og ræða við krakkana um hin ýmsu málefni. Síðastliðið sumar voru þeir Heimir Guðjónsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Tryggvi Guðmundsson, Bjarni Guðjónsson og Kristján Finnbogason meðal gesta. Aðalatriðið er að krakkarnir fái öðruvísi kennslu í knattspyrnu og aðra sýn á íþróttina. Æft verður mánudaga til fimmtudaga frá 10:30-12:00. Verð fyrir 6 vikur er 18.000 krónur en einstök vika kostar 3500 krónur. Ef um systkini er að ræða þá er borgað fullt gjald fyrir fyrsta barn, hálft fyrir annað barn og þriðja barn fær frítt. Námskeiðið hefst mánudaginn 7.júní kl. 10:00. Námskeiðinu lýkur svo fimmtudaginn 15. júlí. Skólastjóri og aðalleiðbeinandi verður Ásmundur Haraldsson, yfirþjálfari knattspyrnudeildar og aðalþjálfari meistaraflokks Gróttu (KSÍ UEFA A).
Skráning tilkynnist á netfangið asmundur@grottasport.is. Allar upplýsingar um greiðslur og þess háttar verða sendar út í tölvupósti áður en námskeiðið hefst.

