Hilmar Sigurðsson: "Fótboltinn skapar skemmtilega stemningu hér í bænum"
Hilmar Sigurðsson er formaður knattspyrnudeildar Gróttu og hefur gegnt því embætti í heil 10 ár. Í formannstíð Hilmars hafa ýmsir áfangar í starfi knattspyrnudeildarinnar unnist, bæði hjá meistaraflokki og yngri iðkendum, og er Hilmar bjartsýnn á framtíð félagsins. Fréttamaður Gróttusport settist niður með formanninum fyrir stuttu og spurði margs um starfið, uppgangiinn, fallið og framtíðina hjá knattspyrnudeild Gróttu.
Lesa meira
Ali skrifar undir nýjan samning
Knattspyrnukappinn fótafimi, Grétar Ali Khan, hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Gróttu. Samningurinn var undirritaður við hátíðlega athöfn í vallarhúsinu á föstudag en eins og kunnugt er skrifaði Bjarni Jakob Gunnarsson undir fyrir stuttu. Ali, sem leikur sem vinstri bakvörður eða kantmaður, hefur leikið 113 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu og er því næst leikjahæsi leikmaður liðsins á eftir Garðari Guðnasyni. Í sumar lék Ali 13 leiki í 1. deildinni og er nú klár fyrir átök og baráttu 2. deildarinnar næsta sumar.
Lesa meira
Grótta gerði jafntefli við ÍBV
Meistaraflokkur hefur hafið æfingar á ný eftir gott jólafrí og var fyrsti leikur ársins leikinn á Gróttuvelli síðasta fimmtudag. ÍBV kom þá í heimsókn, eða réttara sagt blandað lið ÍBV og KA en stór hluti þessara liða æfir í Reykjavík. Leikurinn var hin besta skemmtun og voru Gróttumenn hársbreitt frá því að leggja Pepsi-deildarliðið að velli. Leikar enduðu 3-3 en mörk okkar manna skoruðu þeir Kristófer Þór Magnússon, Jóhannes Hilmarsson og Garðar Guðnason.
Lesa meira
Bjarni Jakob skrifar undir
Þær ánægjulegu fréttir bárust nú í kvöld að Bjarni Jakob Gunnarsson hafi samið við knattspyrnudeild Gróttu. Bjarni var lykilmaður í Gróttuvörninni á síðasta tímabili og kom við sögu í 21 leik í 1. deildinni í sumar. Bjarni Jakob er uppalinn Gróttumaður og hefur leikið 96 meistaraflokksleiki fyrir félagið. Hann á einnig að baki tvo leiki með Fjölni og tvo með varaliði KR. Það má því fastlega gera ráð fyrir því að Bjarni leiki sinn 100. leik fyrir Gróttu í sumar þar sem okkar menn munu berjast af afli við að komast upp í 1. deild á nýjan leik.
Lesa meira
Gróttublaðið komið út
Mikið var um dýrðir í gær þegar Gróttublaðið - jólarit knattspyrnudeildar kom út. Ritstjórn blaðsins afhenti Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra blaðið við hátíðarlega athöfn í hádeginu en seinni partinn hófst dreifing blaðsins. Gróttublaðið ætti að vera komið inn um lúgur allra Seltirninga á hádegi í dag, laugardag, en fljótlega verður það aðgengilegt á vef Gróttu. Í Gróttublaðinu er fjallað um starfsemi knattspyrnudeildar frá ýmsum hliðum og farið yfir síðasta fótboltasumar. Meðal efnis er viðtal við Kristján Finnbogason, leikmann ársins hjá Gróttu, og myndir af öllum yngri flokkum knattspyrnudeildarinnar.
Lesa meira
Gróttublaðið kemur út á föstudaginn
Gróttublaðið - jólarit knattspyrnudeildar kemur út á föstudaginn en því verður dreift í öll hús á Seltjarnarnesi. Útgáfan er nýbreytni hjá deildinni en mikil leynd ríkir yfir blaðinu og efni þess. Fréttastofa Gróttusport heyrði hljóðið í Jóni Sigurðssyni, stjórnarmanni í knattspyrnudeildinni, og spurði hann um málið.
Lesa meira
Hrafn Jónsson skrifar undir hjá Gróttu
Hrafn Jónsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Gróttu. Þetta var tilkynnt í gærkvöldi en þá handsöluðu Hrafn og Hilmar Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar, samninginn í vallarhúsinu. Hrafn er 25 ára gamall og er Gróttumaður í húð og hár. Hann hefur leikið 88 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu og skorað í þeim 14 mörk. Hrafn hefur verið fastamaður í Gróttuliðinu síðustu tvö tímabil eftir að hafa glímt við erfið meiðsli 2008 og 2009. Það er gríðarlega jákvætt að hafa Hrafn Jónsson áfram í Gróttuliðinu sem stefnir beint upp í 1. deild á nýjan leik eftir að hafa fallið í haust.
Lesa meira
Hvaða gera námsmennirnir? Viðtöl við Jónmund og Johnson
Eins og staðan er í dag á Grótta þrjá leikmenn sem staddir eru erlendis í námi, þá Ólaf Pál Johnson, Jónmund Grétarsson og Guðmund Braga Árnason. Mikið er ritað og rætt um leikmannamarkaðinn þessa dagana svo það var ekki úr vegi að spyrja þessa úrásarvíkinga hvort og þá hvar þeir hygðust spila á næsta ári. Hafa strákarnir lagt skóna á hilluna? Mæta þeir ferskir í Gróttuna næsta sumar? Fréttastofa Gróttusport hringdi yfir hafið og spurði drengina spjörunum úr eins og vant er.
Lesa meira
Lesa meira
Enric, Gummi og Haffi skrifa undir
Á þriðjudaginn skrifuðu þeir Enric Már Du Teitsson, Guðmundur Marteinn Hannesson og Hafsteinn Bjarnason undir nýja samninga við knattspyrnudeild Gróttu. Enric er leikjahæstur þremenninganna en hann á að baki 90 leiki fyrir Gróttu. Gummi var fyrirliði liðsins í sumar en hann sneri aftur frá námi fyrir síðasta tímabil. Haffi er fæddur og uppalinn Gróttumaður og hefur leikið 29 meistaraflokksleiki fyrir Gróttu. Það er mikið ánægjuefni að þessir leikmenn hafi skrifað undir og vonandi bætast fleiri við á allra næstu dögum.
Lesa meira
Gummi Magg: "Hlakka til að takast á við starfið"
Eins og kom fram á Gróttusport í síðustu viku hefur Guðmundur Magnússon verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks. Gummi hefur síðustu ár þjálfað yngri flokka Gróttu en hann býr einnig yfir reynslu úr meistaraflokksþjálfun karla og kvenna. Árið 2006 fór hann með kvennalið Breiðabliks í 8-liða úrslit meistaradeildarinnar en hann hefur einnig stýrt kvennaliði Hauka og karlaliðum Hugins og ÍH. Gróttasport tók Seyðfirðinginn tali nú í morgun og spurði hann nokkurra vel valinna spurninga um komandi keppnistímabil.
Lesa meira
Guðmundur Magnússon ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks
Guðmundur Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks Gróttu og verður því hægri hönd Sigga Helga á næsta tímabili. Gummi er ekki alls ókunnugur félaginu en hann hefur bæði þjálfað 5. og 3. flokk karla hjá Gróttu. Ásamt því hefur hann stýrt liði ÍH í 2. deildinni síðustu tvö tímabil. Áður hefur Gummi stýrt liði Hugins í 3. deildinni og meistaraflokki kvenna hjá Haukum og Breiðablik þar sem hann fór með liðið alla leið í 8-liða úrslit meistaradeildarinnar. Hann útskrifaðist með UEFA-A þjálfaragráðu í sumar.
Lesa meira
Siggi Helga áfram með Gróttu
Sigurður Helgason mun halda áfram sem þjálfari meistaraflokks Gróttu á komandi keppnistímabili. Eins og kunnugt er féll Grótta niður í 2. deild á markatölu í síðustu umferð Íslandsmótsins nú í haust eftir tveggja ára veru í 1. deild. Liðið byrjaði af miklum krafti en síðustu leikina hallaði undan fæti með áðurnefndum afleiðingum. Ekki er enn ljóst hver mun vera aðstoðarmaður Sigga.
Lesa meira
Stjáni leikmaður ársins hjá Gróttu
Það þarf engum að koma á óvart að markvörðurinn Kristján Finnbogason hafi verið valinn leikmaður ársins hjá Gróttu á lokahófi meistaraflokks á laugardaginn. Hann hlaut að launum Upptúnsbikarinn margfræga og varð þar með fyrsti leikmaðurinn til að vinna hann tvisvar. Kristján var magnaður milli stanganna í sumar og var meðal annars valinn leikmaður umferðarinnar hjá Fótbolti.net í tvígang. Eins og alþjóð veit hefur Stjáni ákveðið að leggja hanskana á hilluna eftir farsælan feril og er ljóst að hans verður sárt saknað. Á lokahófinu voru veitt fleiri verðlaun, svo sem gullskórinn, apaheili ársins og hrökkbrauð ársins. Sjá nánar hér að neðan.
Lesa meira
Áfall - Grótta féll á markatölu
Það þurfti allt að fara úrskeiðis til að Grótta myndi falla úr 1. deild í dag. Sú varð raunin þar sem Leiknir sigraði deildarmeistara ÍA 4-1 og Grótta tapaði 1-0 fyrir HK sem einnig féll úr deildinni. Þessi örlög eru sérstaklega grátleg í ljósi þess að Grótta var aldrei í fallsæti í sumar fyrr en síðasta hálftímann af síðustu umferðinni. Stigataflan lýgur ekki, Grótta og Leiknir eru bæði með 20 stig en Breiðhyltingar hafa mun betri markatölu. Sjá umfjöllun um leikinn og nokkrar staðreyndir hér að neðan.
Lesa meira
Pétur Már: "Mætum klárir í leikinn og förum glaðir heim"
Pétur Már Harðarson er 22 ára fæddur og uppalinn Seltirningur og Gróttumaður. Hann hefur leikið 87 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu og skorað í þeim 19 mörk. Pétur hefur komið við sögu í 20 leikjum Gróttu í sumar og þá oftast sem djúpur miðjumaður. Fréttastofa Gróttusport heyrði hljóðið í þessum knáa leikmanni nú undir kvöld og spurði hann spjörunum úr um knattspyrnuferilinn, Brøndby, sumarið og auðvitað leikinn mikilvæga við HK næstkomandi laugardag. Sjá nánar hér að neðan:
Lesa meira

