2.flokkur karla

Viggó gegn KR

Tap og jafntefli hjá U-17 í Wales - Viggó með í báðum leikjum

Knattspyrnudeild

30.9.2009

Íslenska landsliðið í fótbolta skipað leikmönnum yngri en 17 ára tekur þessa dagana þátt í undanriðlum Evrópukeppninnar en leikið er í Wales. Viggó Kristjánsson, leikmaður 2. og meistaraflokks Gróttu, var valinn í liðið og hélt utan með hópnum á sunnudagsmorgun. Fyrr í dag lauk öðrum leik liðsins og endaði hann með 1-1 jafntefli.

Strákarnir hófu leik á mánudaginn og léku þá við heimamenn í Wales. Viggó hóf leikinn á miðju íslenska liðsins en markalaust var í leikhléi eftir heldur bragðdaufan fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik fóru hjólin að snúast og á 51. mínútu voru Walesverjar skyndilega búnir að skora tvö mörk. Íslensku piltarnir neituðu þó að gefast upp og jöfnuðu leikinn á næsta korterinu með mörkum frá Hólmberti Friðjónssyni og Kristjáni Emilssyni (FH). Heimamenn voru þó ekki hættir og komust yfir skömmu síðar og héldu forrystunni til loka leiks og svekkjandi tap því staðreynd. Viggó lék allan leikinn og þótti standa sig vel á íslensku miðjunni.

Okkar maður byrjaði á bekknum í öðrum leik liðsins sem fór fram fyrr í dag þegar leikið var við sterkt lið Rússa. Denis Kutin, leikmaður Tolyatti í Rússlandi, tók forrystuna fyrir Rússa á 25. mínútu og höfðu þeir eitt mark yfir í hálfleik. Kristján Emilsson jafnaði hins vegar fyrir íslenska liðið á 59. mínútu og eftir það var leikurinn í járnum en lokatölur urðu 1-1. Viggó kom inná þegar um 10 mínútur voru eftir.

Þessi úrslit þýða að íslenska liðið á litla möguleika á að komast upp úr riðlinum en þó er mikilvægt að klára síðasta leikinn með stæl. Hann verður á laugardaginn og verður þá leikið við lið Bosníu sem er með tvö stig eftir tvo leiki, einu meira en íslenska liðið.

Þess má til gamans geta að Sigurður Helgason, þjálfari 2. og 3. flokks, er í fararstjórn íslenska hópsins og á Grótta því tvo fulltrúa á EM í Wales.

Viggó í bikarleiknum við KRViggó gegn KR



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.