5.flokkur karla

7. flokkur á VÍS-mótinu

13.12.2011 Knattspyrnudeild : Jólafrí knattspyrnudeildar

Núna fer að styttast í jólin. Seinustu æfingar fyrir jólafrí hjá knattspyrnudeild verða mánudaginn 19.desember. Fyrstu æfingar eftir jólafrí verða miðvikudaginn 4.janúar. Á þetta við um 8.flokk til 3.flokks karla og kvenna. Lesa meira
 
Orri Axelsson þjálfari ræðir við liðið í hálfleik

3.10.2011 Knattspyrnudeild : Bloggsíður einstakra flokka í knattspyrnu

Upplýsingagjöf til foreldra og iðkenda verður með nýju sniði en allir flokkar hjá knattspyrnudeild Gróttu fá bloggsíðu. Bloggsíðurnar má sjá ef smellt er á lesa meira. Þjálfarar verða duglegir að setja upplýsingar um starfið, breytingar á æfingatímum, upplýsingar um mót o.fl. inn á bloggsíðurnar. Áfram verður þó góður fréttaflutningur af deildinni hérna á heimasíðu félagsins. Lesa meira
 
Grótta á Símamótinu2

21.9.2011 Knattspyrnudeild : Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar 2011

Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar fer fram sunnudaginn 25.september kl.16.00 í íþróttahúsi Seltjarnarness. Dagskráin verður hefðbundin, allir iðkendur í 6., 7. og 8. flokki fá þátttökuviðurkenningu og verðlaun verða veitt fyrir framfarir og ástundun í 5. - 2. flokki. Að því loknu verður boðið upp á kökuhlaðborð Gróttuforeldra. Á upperskuhátíðinni kynnum við nýja þjálfara og kveðjum þá sem eru að hætta. Foreldrar, systkini, afar og ömmur og aðrir velunnarar Gróttukrakkanna eru velkomnir á uppskeruhátíðina.
Lesa meira
 
ksi20logo

25.5.2011 Knattspyrnudeild : Tækniskóli KSÍ á föstudaginn

Það verður mikið um dýrðir á Gróttuvelli á föstudag en þá fer fram formleg afhending á nýjum DVD-disk, "Tækniskóli KSÍ", Diskurinn er gefinn öllum knattspyrnukrökkum 16 ára og yngri en á honum má finna ýmsar gagnlegar tækniæfingar ásamt viðtölum við landsliðsmenn Íslands í fótbolta. Á föstudaginn er komið að því að afhenda iðkendum Gróttu diskinn en leikmenn meistaraflokks Gróttu munu mæta á svæðið ásamt einstaklingum úr U-21 árs landsliðinu og heilsa upp á krakkana. Dagskráin hefst kl. 15:00 og eru allir iðkendur í 3.-8. flokki eru velkomnir.

Lesa meira

 
Halldór Gauti

22.2.2011 Knattspyrnudeild : 5. flokkur gerði góða ferð á Goðamótið

Um síðustu helgi gerði 5. flokkur karla sér ferð norður á Akureyri og tók þátt í Goðamóti Þórs. Mótið er árlegt fjölliðamót og er leikið í Boganum, Knattspyrnuhöll Akureyringa. Grótta sendi fjögur lið til leiks sem eins og gengur stóðu sig misvel á mótinu. Allir áttu þó góða spretti en E-liðið krækti í bikar með því að vinna B-úrslit mótsins. Nánar um mótið ásamt fjölda mynda hér að neðan. Lesa meira
 
A-liðið á N1-mótinu

25.8.2010 Knattspyrnudeild : A-lið 5. flokks í úrslitakeppni Íslandsmótsins

Eftir harða baráttu í efri hluta B-riðilsins í sumar hefur A-liði 5. flokks tekist að tryggja sér sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins í fótbolta. Strákarnir enduðu í 3. sæti riðilsins með sjö sigra, eitt jafntefli og tvö töp. C-liðið náði einnig þriðja sæti í sínu riðli en aðeins tvö C-lið úr B-riðli fara í úrslitakeppnina. Svekkjandi fyrir strákana sem hafa staðið sig mjög vel í sumar og unnið átta leiki af tíu. Lesa meira
 
A-liðið á Goðamótinu 2008

15.2.2010 Knattspyrnudeild : 5.flokkur karla lenti í 3.sæti á Íslandsmótinu innanhúss

Strákarnir í 5.flokki komust uppúr riðlinum sínum í undankeppninni og spiluðu í úrslitakeppninni síðasta sunnudag í Laugardalshöllinni. Eftir að hafa sigrað fyrstu tvo leikina nokkuð örugglega á móti Dalvík og Geisla þá var síðasti leikurinn í riðlinum á móti erfiðum andstæðingum KR. Þar náðu strákarnir sér engan veginn á strik og töpuðu 2-0

Lesa meira
 

23.11.2009 5.flokkur karla : Æfingaleikur við Víkinga

5.fl.ka fór Sunnudaginn 22. Nóvember og heimsótti Víkinga í Víkina. Þar lékum við með 4 lið á móti heimamönnum. Strákarnir stóðu sig mjög vel í þessum leikjum og unnum við 3 leiki og töpuðum 1. A liðið spilaði hörkuleik við Víkinga og endaði sá leikur með 2-1 sigri okkar. Strákarnir spiluðu flottan fótbolta og börðust gríðarlega vel og uppskáru góðan sigur.  B liði tapaði sínum leik 5-3 þar sem við vorum samt sem áður að spila fínan bolta.  Lesa meira
 
fótbolti

10.11.2009 Knattspyrnudeild : Séræfingar / tækniæfingar á laugardögum

Á laugardögum í vetur verða séræfingar fyrir alla iðkendur yngri flokka í fótboltanum. Æfingar verða þannig uppbyggðar að tækni og boltameðerð verða í hávegum hafðar. Ekkert strit heldur einungis verið að vinna með boltann. Leikmenn meistaraflokks munu sjá um þessar æfingar í vetur og á laugardaginn munu þeir Grétar Ali Khan og Pétur Már Harðarson sjá um æfingarnar. Lesa meira
 
paejumot1

24.9.2009 Knattspyrnudeild : Uppskeruhátíð fótboltans á sunnudaginn

Sunnudaginn 27. sept verður uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Gróttu haldin í Íþróttahúsinu. Hátíðin hefst kl. 16.00. Veitt verða verðlaun og viðurkenningar í öllum flokkum. Að verðlaunaafhendingu lokinni þá verður kökuhlaðborð í hátíðarsal Gróttu. Að venju þá koma kökurnar frá iðkendunum sjálfum. Þá sér hver iðkandi um að koma með eitthvað til að setja á hlaðborðið. Lesa meira
 
Birgir_Gudmundur_og_Jon_handsala_samninginn

21.9.2009 Knattspyrnudeild : Guðmundur Magnússon ráðinn þjálfari 5.fl. karla

Guðmundur Magnússon hefur verið ráðinn þjálfari hjá knattspyrnudeild Gróttu og mun þjálfa 5.flokk karla. Guðmundur er 34 ára og uppalin frá Seyðisfirði . Hann spilaði með Huginn Seyðisfirði í öllum yngri flokkum og síðan með meistaraflokki en þess má geta að Guðmundur hefur spila í kringum 200 meistaraflokksleiki með Huginn Seyðisfirði, Þrótti Neskaupsstað, Haukum og Hömrunum /Vinum. Lesa meira
 
Grotta-Hvot1

10.9.2009 Knattspyrnudeild : Grótta þarf 1 stig til að komast í 1.deild

Á laugardaginn kemur verður 21. umferð Íslandsmóts 2. deildar karla leikin. Úrslitin geta ráðist í þessari umferð, bæði á toppi og botni deildar. Grótta leikur við Víði í Garðinu og þarf eitt stig til að tryggja sæti í 1.deild að ári. Með sigri getur liðið farið langleiðina með að tryggja sér titilinn í ár en þó fer það eftir úrslitum annarra leikja í umferðinni. En allir Gróttarar, nær og fjær, eru hvattir til að koma í Garðinn og styðja strákana til sigurs. Þetta er síðasti útileikurinn og nú þarf Grótta á stuðningi að halda. Leikurinn fer fram á laugardag og hefst kl. 12 í Garðinum! Allir að mæta! Áfram Grótta! Lesa meira
 
ksi20logo

4.9.2009 Knattspyrnudeild : Grótta er einum sigri frá 1.deild

Á morgun taka Gróttumenn á móti BÍ/Bolungarvík í 20.umferð 2.deildar karla. Með sigri tryggir Grótta sér sæti í 1.deild að ári. Það þarf því ekkert að fjölyrða neitt frekar um mikilvægi leikins á morgun. Gestirnir eiga enn möguleika á að komast upp og því verður klárlega um hörkuleik að ræða. Strákarnir í Gróttunni þurfa því á miklum stuðningi að halda og eru því allir hvattir til að mæta og hvetja strákana áfram. Leikurinn hefst kl. 14 og fer fram á Gróttuvelli. Áfram Grótta! Lesa meira
 
B-liðið á Olísmótinu

9.8.2009 Knattspyrnudeild : Góður árangur hjá 5.flokki á Olísmótinu á Selfossi

Olísmótið á Selfossi fór fram um helgina og að sjálfsögðu mættu strákarnir úr 5.flokki á mótið enda átti A-lið titil að verja. Grótta sendi 4 lið til leiks og léku liðin 8 leiki á þremur dögum. Á föstudegi var leikið í hraðmóti til þess að ákvarða deildaskipan hina tvo dagana. A og D náðu í A-úrslit en B og C fóru í B-úrslit. Á endanum náði B liðið að sigra B-úrslitin og gerðu það með miklum stæl. A-liðið endaði í 3.sæti á mótinu. Lesa meira
 
Viktor_Orri

14.7.2009 Knattspyrnudeild : Viktor Orri vann ferð í Bobby Charlton fótboltaskólann

Viktor Orri Pétursson, leikmaður í 5.flokki karla í Gróttu varð fyrstur til að vinna sér inn ferð í Knattspyrnuskóla Manchester United með Úrval Útsýn fyrir að vera duglegur að safna myndum af íslenskum knattspyrnumönnum. Lesa meira
 

Útlit síðu:



fotbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.