Jólafrí knattspyrnudeildar
Núna fer að styttast í jólin. Seinustu æfingar fyrir jólafrí hjá knattspyrnudeild verða mánudaginn 19.desember. Fyrstu æfingar eftir jólafrí verða miðvikudaginn 4.janúar. Á þetta við um 8.flokk til 3.flokks karla og kvenna.
Lesa meira
Bloggsíður einstakra flokka í knattspyrnu
Upplýsingagjöf til foreldra og iðkenda verður með nýju sniði en allir flokkar hjá knattspyrnudeild Gróttu fá bloggsíðu. Bloggsíðurnar má sjá ef smellt er á lesa meira. Þjálfarar verða duglegir að setja upplýsingar um starfið, breytingar á æfingatímum, upplýsingar um mót o.fl. inn á bloggsíðurnar. Áfram verður þó góður fréttaflutningur af deildinni hérna á heimasíðu félagsins.
Lesa meira
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar 2011
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar fer fram sunnudaginn 25.september kl.16.00 í íþróttahúsi Seltjarnarness. Dagskráin verður hefðbundin, allir iðkendur í 6., 7. og 8. flokki fá þátttökuviðurkenningu og verðlaun verða veitt fyrir framfarir og ástundun í 5. - 2. flokki. Að því loknu verður boðið upp á kökuhlaðborð Gróttuforeldra. Á upperskuhátíðinni kynnum við nýja þjálfara og kveðjum þá sem eru að hætta. Foreldrar, systkini, afar og ömmur og aðrir velunnarar Gróttukrakkanna eru velkomnir á uppskeruhátíðina.
Lesa meira
Lesa meira
7. flokkur á Skagamótinu
Helgina 17-19 júní fór 7. flokkur Gróttu með 34 stráka á Skagamótið á Akranesi. Mótið er eitt fjölmennasta íþróttamót landsins þar sem 6-7 ára fótboltastrákar frá öllu landinu etja kappi. Margir eru að keppa á "stórmóti" í fyrsta skipti og er þetta því mikil upplifun fyrir strákana. Gróttustrákarnir stóðu sig vel en F-liðið gerði sér lítið fyrir og sigraði þýsku deildina en keppt er í nokkrum deildum seinni tvo dagana.
Lesa meira
Yngstu fótboltakrakkarnir á VÍS-mótinu
Helgina 28-29 maí fór fram VÍS-mótið í Laugardal en það er haldið fyrir 6. og 7. flokk karla og kvenna. Grótta sendi samtals níu lið til leiks og stóðu krakkarnir sig að sjálfsögðu með stakri prýði. Mótið er góð byrjun á sumrinu og fín æfing fyrir krakkana. Öll lið fengu að spila 5-6 leiki en á mótum sem þessum eru framfarir liðanna oft miklar.
Lesa meira
Tækniskóli KSÍ á föstudaginn
Það verður mikið um dýrðir á Gróttuvelli á föstudag en þá fer fram formleg afhending á nýjum DVD-disk, "Tækniskóli KSÍ", Diskurinn er gefinn öllum knattspyrnukrökkum 16 ára og yngri en á honum má finna ýmsar gagnlegar tækniæfingar ásamt viðtölum við landsliðsmenn Íslands í fótbolta. Á föstudaginn er komið að því að afhenda iðkendum Gróttu diskinn en leikmenn meistaraflokks Gróttu munu mæta á svæðið ásamt einstaklingum úr U-21 árs landsliðinu og heilsa upp á krakkana. Dagskráin hefst kl. 15:00 og eru allir iðkendur í 3.-8. flokki eru velkomnir.
Vel heppnað Skagamót hjá 7.flokki
Sumarmót yngri flokkanna eru nú hafin en eins og við sögðum frá hér á síðunni fór 5. flokkur kvenna á Pæjumótið í Vestmannaeyjum á dögunum. Þessa helgina ferð 6. flokkur karla á Shellmótið í Eyjum og í næstu viku fer 5. flokkur á N1-mótið á Akureyri. Það voru 32 sprækir Gróttustrákar í 7. flokki sem gerðu góða ferð á Skagamótið um síðustu helgi en Grótta sendi 4 lið til leiks að þessu sinni.
Lesa meira
Séræfingar / tækniæfingar á laugardögum
Á laugardögum í vetur verða séræfingar fyrir alla iðkendur yngri flokka í fótboltanum. Æfingar verða þannig uppbyggðar að tækni og boltameðerð verða í hávegum hafðar. Ekkert strit heldur einungis verið að vinna með boltann. Leikmenn meistaraflokks munu sjá um þessar æfingar í vetur og á laugardaginn munu þeir Grétar Ali Khan og Pétur Már Harðarson sjá um æfingarnar.
Lesa meira
Magnús Örn og Orri áfram þjálfarar hjá Gróttu
Ungu þjálfaranir Magnús Örn Helgason og Orri Axelsson hafa verið endurráðnir hjá Knattspyrnudeild Gróttu fyrir yngri flokka starfið hjá stelpunum og strákunum fyrir næsta tímabil. Magnús mun þjálfa 3. flokk kvenna og vera aðstoðarþjálfari í 4. flokk karla. Orri mun þjálfa 4. flokk kvenna og 8. flokk kvenna og karla ásamt því að vera aðstoðarþjálfari í 6. og 7. flokki karla.
Lesa meira
Uppskeruhátíð fótboltans á sunnudaginn
Sunnudaginn 27. sept verður uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Gróttu haldin í Íþróttahúsinu. Hátíðin hefst kl. 16.00. Veitt verða verðlaun og viðurkenningar í öllum flokkum. Að verðlaunaafhendingu lokinni þá verður kökuhlaðborð í hátíðarsal Gróttu. Að venju þá koma kökurnar frá iðkendunum sjálfum. Þá sér hver iðkandi um að koma með eitthvað til að setja á hlaðborðið.
Lesa meira
Grótta þarf 1 stig til að komast í 1.deild
Á laugardaginn kemur verður 21. umferð Íslandsmóts 2. deildar karla leikin. Úrslitin geta ráðist í þessari umferð, bæði á toppi og botni deildar. Grótta leikur við Víði í Garðinu og þarf eitt stig til að tryggja sæti í 1.deild að ári. Með sigri getur liðið farið langleiðina með að tryggja sér titilinn í ár en þó fer það eftir úrslitum annarra leikja í umferðinni. En allir Gróttarar, nær og fjær, eru hvattir til að koma í Garðinn og styðja strákana til sigurs. Þetta er síðasti útileikurinn og nú þarf Grótta á stuðningi að halda. Leikurinn fer fram á laugardag og hefst kl. 12 í Garðinum! Allir að mæta! Áfram Grótta!
Lesa meira
Grótta er einum sigri frá 1.deild
Á morgun taka Gróttumenn á móti BÍ/Bolungarvík í 20.umferð 2.deildar karla. Með sigri tryggir Grótta sér sæti í 1.deild að ári. Það þarf því ekkert að fjölyrða neitt frekar um mikilvægi leikins á morgun. Gestirnir eiga enn möguleika á að komast upp og því verður klárlega um hörkuleik að ræða. Strákarnir í Gróttunni þurfa því á miklum stuðningi að halda og eru því allir hvattir til að mæta og hvetja strákana áfram. Leikurinn hefst kl. 14 og fer fram á Gróttuvelli. Áfram Grótta!
Lesa meira
Sumarmót yngri flokka komin á fullt
Nú standa yfir sumarmótin árlegu hjá yngri flokkum landsins. Gróttan missir ekki af neinu þar og núna um síðastliðnu helgi var 7.flokkur karla á Kaupþingsbankamótinu á Akranesi og 3.flokkur kvenna fór norður til Siglufjarðar á Miðnæturmótið. Von er á ferðasögu frá stelpunum á næstu dögum. En strákarnir fóru á Skagann síðastliðinn föstudag og voru fjögur lið send til keppni í A, C, D og E liðum. E liðið var að mestu leyti skipað strákum úr 8.flokki sem hafa verið að æfa með 7.flokki í vetur. Afskaplega skemmtilegt lið sem að náði því að komast í Íslensku deildina (efsta deild) á laugardeginum.
Lesa meira
Framkvæmdir við hlaupabraut hafnar
Knattspyrnudeild vill vekja athygli á því að þar sem að framkvæmdir við hlaupabraut á vallarsvæðinu eru hafnar þá mun aðgangur að svæðinu vera takmarkaður. Verið er að vinna með hættuleg og dýr efni sem mega ekki við skemmdum af völdum bolta eða umgangs á vinnusvæðinu. Þar með verða æfingar yngstu flokkanna annaðhvort inni eða á sparkvöllum bæjarins. Þjálfarar gefa allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag æfinga. Við biðjum velvirðingar á þeirri röskun sem kemur til með að vera á næstu dögum en um leið óskum eftir þolinmæði og skilningi vegna þessa.
Lesa meira
Grótta - Hamar á morgun í 2.deildinni
Gróttumenn leika sinn annan leik á Íslandsmótinu á morgun þegar þeir taka á móti liði Hamars úr Hveragerði. Leikurinn hefst kl. 14 og fer fram á gervigrasvellinum við Suðurströnd. Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða þar sem að Gróttumenn fengu aðeins eitt stig út úr fyrsta leiknum í deildinni og vilja klárlega koma sér á beinu brautina með sigri á morgun. Hamarsmenn koma af krafti í þennan leik eftir tap í fyrstu umferð. Hvetjum alla til að koma á leikinn!
Lesa meira

