7.flokkur karla

Vetrarfrí, foreldrafundur og fyrsta mót

Knattspyrna - 7.flokkur karla

23.10.2008

Nú er að bresta á vetrarfrí í skólanum og því kærkomið frí fyrir flesta. Handboltinn mun vera í fríi frá æfingum í vetrarfríinu en á móti verða þeir viku lengur í vor svo það sé samhangandi með skólanum. Ég ákvað að bjóða upp á æfingar í fríinu svo strákarnir hafi eitthvað að gera ef þeir eru bara heima við. Þetta er algjörlega frjálst og engin skyldumæting á þessar æfingar. Æfingar skv töflu falla því niður á meðan það er enginn skóli en þessar æfingar koma í staðinn:

Mánudagur 27.okt kl. 11.00 í stóra sal

Þriðjudagur 28.okt kl. 10:30 í stóra sal

Fimmtudagur 30.okt ? æfing skv æfingatöflu

Foreldrafundur verður haldinn þriðjudaginn 4.nóvember kl. 19.00 hér í hátíðarsal íþróttahússins. Starfið kynnt og svona almennt farið yfir veturinn og sumarið.

Fyrsta mót vetrarins verður laugardaginn 8. nóvember í Reykjaneshöllinni í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar hér að neðan. Mjög stutt og skemmtilegt mót, spilað innanhúss á gervigrasi. Þegar farið er á svona mót þá óska ég eftir staðfestingu varðandi þátttöku barnsins, hvort sem að farið er eða ekki. Við þurfum að tilkynna nákvæman fjölda liða því ef forföll verða þá getur mótið riðlast og þar með heilu mótin farið í súginn ef við klúðrum skráningunni. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem allra allra fyrst. Minni á að þetta er algjörlega valfrjálst.

Leikid á 4 völlum samtímis. Vallarstærd: 50 x 32 m.

Fjöldi leikmanna í lidi: 6 útileikmenn + markvördur

Tátttökugjald: 1500 kr. á hvern tátttakenda

Innifalid: verdlaunapeningur fyrir alla Þátttakendur og pizzuveisla.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.