Nýjustu úrslit

6.9.2010 Nýjustu úrslit : ÍA - Grótta: 6 - 1

Skagamenn átt hreinan stórleik þegar þeir gjörsigruðu lið Gróttu 6-1 og gera nú atlögu að efri hluta deildarinnar í fyrsta sinn í tvö ár. Á sama tíma er staða Gróttumanna orðin mjög erfið í fallbaráttunni í dag og má ekkert útaf bregða til að þeir falli niður í 2. deild aðeins einu stigi frá fallsæti.
Lesa meira
 

30.8.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - Víkingur: 1 - 6

Það var prýðilegt veður á Seltjarnarnesinu í gærkvöldi þegar lið Víkings frá Reykjavík mætti á Gróttuvöll til að etja kappi við heimamenn í Gróttu. Fyrir leikinn spáðu flestir Víkingum sigri enda í harðri baráttu um sæti í úrvalsdeild. Gróttuliðið var aftur á móti í 10. sæti og tveimur stigum frá fallsæti. Margt var um manninn á vellinum og góð stemning þegar leikurinn var flautaður á. Lesa meira
 

23.8.2010 Nýjustu úrslit : Þór Ak - Grótta: 5 - 0

Á föstudagskvöld flugu okkar menn norður yfir heiðar og léku við lið Þórs frá Akureyri. Fyrir leikinn voru Þórsarar í 3. sæti deildarinnar á meðan Grótta var í því 10. Skörð voru í leikmannihópi Gróttu þar sem Bjarni Jakob Gunnarsson tók út leikbann og þeir Bragi Árnason, Sölvi Davíðsson, Kristján Finnbogason, Magnús Gíslason og Dan Howell léku ekki með vegna meiðsla. Skemmst er frá því að segja að Þórsarar tóku okkar menn í bakaríið með 5-0 sigri en þrátt fyrir það var aðeins 1-0 fram á 70. mínútu. Lesa meira
 
Grotta-IA_Solvi

18.8.2010 Knattspyrnudeild : Grótta - Leiknir: 0 - 0

Grótta og Leiknir áttust við í baráttuleik á Seltjarnarnesi nú fyrr í kvöld. Fyrir leikinn var Leiknir í efsta sæti 1. deildar en Grótta í því 8. Allar aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru til fyrirmyndar, frábært veður og fullt af áhorfendum lögðu leið sína á völlinn.
Lesa meira
 

8.8.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - Fjarðabyggð: 3 - 1

Grótta mætti Fjarðabyggð í miklum fallbaráttuslag í 1.deildinni í dag. Fyrir leikinn var Grótta með 13 stig í 10. sæti deildarinnar en Fjarðabyggð með 11 stig í 11. sæti. Leikurinn í dag var því einkar mikilvægur enda bæði lið að reyna að forðast fall. Það voru Gróttumenn sem voru fyrri til að skora í leiknum. Á 16. mínútu átti Kristján Finnbogason langt útspark sem barst af Daniel Howell í varnarmann Fjarðabyggðar og þaðan inn fyrir vörnina, þar lúrði Viggó Kristjánsson og kláraði færið örugglega. Þess má geta að Viggó Kristjánsson er fæddur 1993 og er einn efnilegasti leikmaður Gróttu þessa stundina. Lesa meira
 

3.8.2010 Nýjustu úrslit : HK - Grótta: 2 - 2

14. umferð Íslandsmótsins fór fram í gærkvöldi þegar Grótta lék við lið Handknattleiksfélag Kópavogs á útivelli. Fyrir leikinn voru okkar menn í 10. sæti með 12 stig á meðan HK var í því 7. með 15. Leikurinn reyndist hin besta skemmtun og endaði með 2-2 jafntefli þar sem Gróttuliðið var sterkari aðilinn í leiknum og spilaði á köflum glimrandi knattspyrnu. Fréttaritari Gróttusport var á leiknum og fylgdist vel með gangi mála. Lesa meira
 

8.7.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - ÍA: 1 - 4

Grótta tók á móti ÍA í 9. umferð 1. deildar karla á Seltjarnarnesi á fimmtudaginn. Bæði lið voru við botninn og þurftu nauðsynlega á stigum að halda. Grótta með 4 stig í 12. sæti og ÍA í því 10. með 9 stig. Leikurinn fór fram í grenjandi rigningu en annars voru aðstæður góðar. Lesa meira
 

29.6.2010 Nýjustu úrslit : Víkingur - Grótta: 1 - 0

Um síðustu helgi fór fram áttunda umferð 1. deildar karla í fótbolta og fóru okkar menn í heimsókn í Fossvoginn og spiluðu við lið Víkings. Fyrir leikinn bjuggust flestir við sigri heimamanna sem sátu í 4. sætinu á meðan Gróttuliðið var í því næst neðsta. Leikurinn fór fjörlega af stað og eftir aðeins 10 mínútna leik var Grótta nálægt því að komast yfir. Þar var að verki framherjinn Magnús Bernhard Gíslason sem stakk sér inn fyrir vörn Víkinga en náði ekki að skora. Lesa meira
 

14.6.2010 Nýjustu úrslit : Leiknir - Grótta: 2 - 1

Grótta fór í fyrri af sínum tveimur heimsóknum í Breiðholtið á þessu tímabili núna föstudaginn. Allar aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru til fyrirmyndar; gott veður, góður völlur og tvö prýðileg. Leiknismenn hafa byrjað deildina af krafti að það var ljóst að það yrði við ramman reip að draga. Þar að auki vantaði Kristján Finnboga í markið en hann er lítillega meiddur. Lesa meira
 

14.6.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - Fjölnir: 1 - 2

Leikur Gróttu og Fjölnis fór fram á Gróttuvelli nú fyrr í kvöld. Liðin áttu ólíku gengi að fagna eftir bikarleiki í vikunni. Þar sigraði Fjölnir úrvalsdeildarlið Hauka 2-0 á meðan Grótta tapaði 3-1 fyrir Þrótti. En í 1. deildinni var einungis tveggja stiga munur á liðunum, Fjölnir með 6 stig en Grótta 4. Lesa meira
 

14.6.2010 Nýjustu úrslit : Þróttur - Grótta: 3 - 1

Grótta og Þróttur áttustu við á Valbjarnarvelli í Laugardalnum nú fyrr í kvöld. Aðstæður voru ágætar þó svo að Valbjarnarvöllur hefur litið betur út. Ef eitthvað má setja út á gestrisni Þróttara þá er það helst að hátalarkerfi þeirra er það hæsta sem undirritaður hefur nokkurn tímann heyrt og var við það að gera alla stuðningsmenn Gróttu heyrnalausa.

Lesa meira
 

1.6.2010 Nýjustu úrslit : Fjarðabyggð - Grótta: 1 - 4

Það var einbeitt og vel stemmt Gróttulið sem mætti til leiks í Fjarðarbyggðarhöllini á Reyðarfirði í fjórða leik liðsins í 1. deildinni í gær. Fyrir leikinn hafi Fjarðarbyggð nælt sér í þrjú stig á meðan okkar menn voru aðeins með eitt. Leikurinn var fjörugur allan tímann og endaði með glæsilegum 4-1 sigri Gróttu og varð hann fyrsti sigur félagsins í 1. deild. Lesa meira
 

25.5.2010 Nýjustu úrslit : Grótta - HK: 1 - 2

Það var að venju frábært veður á Seltjarnarnesi þegar HK mætti í heimsókn á Gróttuvöll í gær. Eins og við mátti búast fjölmættu Seltirningar á völlinn og mikil spenna í loftinu þegar flautað var til leiks. Fyrir leikinn voru heimamenn í Gróttu með 1 stig en gestirnir með 3. Gunnar Þorbergur Gylfason (Gussi) var að sjálfsögðu á vellinum og skrifaði um leikinn. Lesa meira
 

19.5.2010 Nýjustu úrslit : Hamar - Grótta: 5 - 6

Grótta komst í þriðju umferð bikarkeppni KSÍ í kvöld með sigri á Hamri í Hveragerði. Leikurinn fer seint í sögubækurnar fyrir skemmtangildi enda vorbragur á báðum liðum. Eftir að staðan var 0-0 eftir venjulegan leiktíma þurfti að grípa til framlengingar. Þar skoruðu liðin sitt markið hvort og réðust því úrslitin ekki fyrr en eftir vítaspyrnukeppni.

Lesa meira
 

Útlit síðu:



fotbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.