Nýjustu úrslit
Fjarðabyggð - Grótta: 1 - 4
Knattspyrna - Mfl. karla
Það var einbeitt og vel stemmt Gróttulið sem mætti til leiks í Fjarðarbyggðarhöllini á Reyðarfirði í fjórða leik liðsins í 1. deildinni í gær. Fyrir leikinn hafi Fjarðarbyggð nælt sér í þrjú stig á meðan okkar menn voru aðeins með eitt. Leikurinn var fjörugur allan tímann og endaði með glæsilegum 4-1 sigri Gróttu og varð hann fyrsti sigur félagsins í 1. deild.
Grótta byrjaði leikinn af krafti og á fyrstu mínútum leiksins var liðið mjög nálægt því að skora. Vignir Benediktsson átti hörkuskalla eftir horn sem Srdjan Rajkovic fyrirliði og markvörður Fjarðarbyggðar varði glæsilega. Stuttu síðar komst Einar Bjarni Ómarsson í ágætt færi á markteigshorninu en aftur bjargaði Rajkovic. Austfirðingar áttu líka sín færi en Kristján Finnbogason þurfti einu sinni að taka á honum stóra sínum í markinu eftir gott langskot. Eftir hálftímaleik náðu okkar menn að brjóta ísinn og komast yfir með glæsilegu marki. Þá "kassaði" Elvar boltann á Pétur Má sem gaf góða sendingu á Dan sem sendi boltann þvert fyrir mark Fjarðarbyggðar þar sem Sölvi Davíðsson kom aðvífandi og skroraði með skoti í fjærhornið.
Þegar flautað var til seinni hálfleiks var ljóst að Gróttuliðið ætlaði ekki að gefa tommu eftir og eftir fjórar mínútur hafi annað markið litið dagsins ljós. Þá fékk Elvar Freyr góða sendingu inn fyrir vörnina frá Pétri Má, lék snyrtilega á markvörð andstæðinganna og renndi boltanum í autt markið. Stuttu seinna fékk helsta stjarna Fjarðarbyggðar, Jóhann Benediktsson, að líta sitt annað gula spjald og austfirðingar þar með einum manni færri. Næstu mínútur hafði Grótta öll völd á vellinum og virtist vera að landa auðveldum sigri þar til á 75 mínútu þegar Fjarðbaryggð minnkaði muninn, gegn gangi leiksins. Þar var að verki Aron Már Smárason sem fékk háa sendingu inn fyrir Gróttuvörnina og skoraði laglega í hornið nær.
Við þetta fór smá taugatitringur um Gróttuliðið sem náði þó að gera út um leikinn á 85. mínútu en þar var Elvar aftur á ferðininni, nú eftir sendingu frá Einari Bjarna. Við markið gáfust heimamenn algjörlega upp og fóru síðustu mínúturnar algjörlega fram inn í þeirra eigin vítateig. Eftir aragrúa af færum Gróttumanna var það Elvar sem náði að fullkomna þrennuna á 90. mínútu með laglegu skoti fyrir utan teig.
Okkar menn fögnuðu sigrinum vel og innilega enda gríðarlega mikilvægt að næla sér í þrjú stig á útivelli og gefur góða von fyrir framhaldið. Vörnin var örugg nánast allan leikinn með Kristján á bak við sig og sóknin mjög beitt. Fyrir utan stórleik og þrennu Elvars í framlínunni átti Einar Bjarni góðan leik með frábærum sendingum og baneitruðum rispum upp vinstri kantinn.
Næstu andstæðingar Gróttu eru ekki af verri endanum en það eru liðin tvö sem féllu úr Pepsi-deildinni í fyrra, Þróttur og Fjölnir. Á fimmtudaginn sækja strákarnir Þróttara heim í Laugardalinn í 32-liða úrslitum VISA-bikarsins og hefst leikurinn kl. 19:15. Næsti deildarleikur er svo á sunnudaginn þegar Fjölnismenn koma í heimsókn á Gróttuvöll og hefst sá leikur einnig kl. 19:15. Allt Gróttufólk er auðvitað hvatt til að leggja leið sína á báða leikina og styðja strákana til sigurs!
Lið Gróttu í gær:
Kristján, Hrafn (Hafsteinn '56), Knútur (f), Vignir, Einar Bjarni, Bragi, Ólafur Páll (Ásgrímur '76), Pétur Már, Sölvi, Dan (Ali '82), Elvar Freyr
Ónotaðir varamenn: Magnús Örn og Viggó

