Jólafrí knattspyrnudeildar
Núna fer að styttast í jólin. Seinustu æfingar fyrir jólafrí hjá knattspyrnudeild verða mánudaginn 19.desember. Fyrstu æfingar eftir jólafrí verða miðvikudaginn 4.janúar. Á þetta við um 8.flokk til 3.flokks karla og kvenna.
Lesa meira
Bloggsíður einstakra flokka í knattspyrnu
Upplýsingagjöf til foreldra og iðkenda verður með nýju sniði en allir flokkar hjá knattspyrnudeild Gróttu fá bloggsíðu. Bloggsíðurnar má sjá ef smellt er á lesa meira. Þjálfarar verða duglegir að setja upplýsingar um starfið, breytingar á æfingatímum, upplýsingar um mót o.fl. inn á bloggsíðurnar. Áfram verður þó góður fréttaflutningur af deildinni hérna á heimasíðu félagsins.
Lesa meira
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar 2011
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar fer fram sunnudaginn 25.september kl.16.00 í íþróttahúsi Seltjarnarness. Dagskráin verður hefðbundin, allir iðkendur í 6., 7. og 8. flokki fá þátttökuviðurkenningu og verðlaun verða veitt fyrir framfarir og ástundun í 5. - 2. flokki. Að því loknu verður boðið upp á kökuhlaðborð Gróttuforeldra. Á upperskuhátíðinni kynnum við nýja þjálfara og kveðjum þá sem eru að hætta. Foreldrar, systkini, afar og ömmur og aðrir velunnarar Gróttukrakkanna eru velkomnir á uppskeruhátíðina.
Lesa meira
Lesa meira
Sigrar á ÍA og HK hjá 4. flokki
4. flokkur karla hefur byrjað sumarið af krafti. A-liðið er nú í 5. sæti A-riðils eftir eitt tap, eitt jafntefli og tvo sigra í síðustu tveimur leikjum. Í síðustu viku fóru strákarnir upp á Skaga og léku við ÍA en sá leikur endaði 3-2 fyrir Gróttu í háspennuleik. Á fimmtudaginn komu svo HK-ingar í heimsókn á Gróttuvöll og eftir slakan fyrri hálfleik þar sem Gróttudrengirnir voru undir 3-1 snerist taflið við í síðari hálfleik og 4-3 Gróttusigur staðreynd. B- og C-liðin hafa einnig staðið sig vel en C-liðið er með sex stig eftir þrjá leiki. Nánar hér að neðan.
Lesa meira
Tækniskóli KSÍ á föstudaginn
Það verður mikið um dýrðir á Gróttuvelli á föstudag en þá fer fram formleg afhending á nýjum DVD-disk, "Tækniskóli KSÍ", Diskurinn er gefinn öllum knattspyrnukrökkum 16 ára og yngri en á honum má finna ýmsar gagnlegar tækniæfingar ásamt viðtölum við landsliðsmenn Íslands í fótbolta. Á föstudaginn er komið að því að afhenda iðkendum Gróttu diskinn en leikmenn meistaraflokks Gróttu munu mæta á svæðið ásamt einstaklingum úr U-21 árs landsliðinu og heilsa upp á krakkana. Dagskráin hefst kl. 15:00 og eru allir iðkendur í 3.-8. flokki eru velkomnir.
4. flokkur karla í úrslitakeppni Íslandsmótsins
Á fimmtudaginn lauk riðlakeppni Íslandsmóts 4. flokks karla í fótbolta. Þriðja árið í röð lék Grótta í A-riðli og náði A-lið flokksins þeim frábæra árangri að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni með því að enda í 3. sæti riðilsins. Strákarnir kláruðu sumarið með sjö sigra, eitt jafntefli og þrjú töp en 2-1 sigur á FH í síðasta leik tryggði þriðja sætið. B- og C-liðið áttu einnig gott sumar en í fréttinni rennum við yfir sumarið hjá öllum liðum.
Lesa meira
Grótta náði í brons á Norway Cup
Í síðustu viku tóku fjögur íslensk lið þátt í Norway Cup í Osló, einu stærsta knattspyrnumóti veraldar. Afturelding, Víkingur og Sindri sendu lið til leiks ásamt okkar strákum í Gróttu sem voru með fjölmennasta hóp Íslendinga á mótinu. Tvö 3. flokks lið voru mætt til leiks ásamt tveimur 14-ára liðum og einu 13-ára liði. Eins og frægt er orðið náði 3. flokkur bestum árangri með því að krækja í brons sem er besti árangur sem íslenskt lið hefur náð á mótinu. Það og meira í fréttinni.
Lesa meira
Norway Cup - Fimmtudagur hjá 4.flokki
Í gær spilaði elsta liðið í 4.flokknum leik í 32-liða úrslitum við afganska liðið undir eftirliti norska hersins og var leikurinn tekinn upp að mestu leyti þar sem verið að gera heimildarmynd um vera þeirra hér. Er skemmst frá því að segja að Grótta vann leikinn í framlengingu með "gullmarki" þannig að leiknum lauk með markinu. Frábær stemning og árangur hjá strákunum.
Lesa meira
Norway Cup - Viðburðaríkur dagur hjá 4.flokki
Viðburðarríkur dagur á enda. Hófst á því að yngra liðið keppti sinn leik í 32-liða úrslitum við ungverskt lið og eftir hnífjafnan leik þar sem þeir lentu undir tvisvar var framlengt og að lokinn framlengingu var enn jafnt svo að grípa þurfti til hlutkestis. Því miður töpuðum við því. Súrt þár sem þeir voru að standa sig mjög vel.
Lesa meira
Lesa meira
Norway Cup - Riðlakeppninni lokið hjá 4.flokki
Riðlakeppninni lauk í gær. Elsta liðið í 4.flokki gerði 2-2 jafntefli og var það nóg fyrir efsta sæti riðilsins og yngsta liðið vann sinn leik 6-0 og vann líka sinn riðil. Blandaða liðið spilaði síðan við sterkasta liðið í sínum riðli og þurfti jafntefli a.m.k. til ad komast í B-úrslit. Þessir strákar sýndu frábæran leik og keppnisskap og börðust eins og ljón og var jafnt þar til 4 mínútum fyrir leikslok þegar hinir náðu að pota inn marki. Sannanlega sárgrætilegt en þeir mega vera stoltir af leiknum sem var hin mesta skemmtun fyrir þá mörgu sem á horfðu.
Lesa meira
Birna Rún og Bjarni Rögnvalds í Knattspyrnuskóla KSÍ
Vikuna 7. - 11.júní sl. var Birna Rún Erlendsdóttir, stúlka í 4.fl. kvenna valin í knattspyrnuskóla KSÍ en skólinn fer fram á Laugarvatni. Bjarni Rögnvaldsson í 4.fl. karla var valinn frá Gróttu í sams konar skóla fyrir drengi en hann var vikuna 14. - 18.júní. Í skólanum æfa leikmenn allra aðildafélaga KSÍ undir handleiðslu landsliðsþjálfara en auk þess fara fram fræðslufyrirlestrar fyrir leikmennina.
Lesa meira
Haustmóti 4. flokks lokið
Nú er haustmóti 4. flokks karla lokið en þetta árið sendi Grótta þrjú lið til leiks, eitt A-lið og tvö B-lið. Lið B1 gerði sér lítið fyrir og sigraði mótið með fullu húsi stiga en A- og B2-liðið stóðu sig líka vel og höluðu inn fjölmörgum stigum. Hvert lið lék fjóra leiki en auk þess hafa strákarnir spilað tvo æfingaleiki það sem af er hausti við lið KR og Breiðabliks.
Lesa meira
Séræfingar / tækniæfingar á laugardögum
Á laugardögum í vetur verða séræfingar fyrir alla iðkendur yngri flokka í fótboltanum. Æfingar verða þannig uppbyggðar að tækni og boltameðerð verða í hávegum hafðar. Ekkert strit heldur einungis verið að vinna með boltann. Leikmenn meistaraflokks munu sjá um þessar æfingar í vetur og á laugardaginn munu þeir Grétar Ali Khan og Pétur Már Harðarson sjá um æfingarnar.
Lesa meira
Fyrstu leikir tímabilsins á sunnudaginn
Þá er komið að því, fyrstu leikir tímabilsins fara fram á sunnudaginn þegar A-liðið leikur við lið HK o
g B-liðin tvö keppa innbyrðis. Báðir leikirnir fara fram á Gróttuvelli og hefst A-liðs leikurinn kl. 11:30 og B-liðs leikurinn 13:00. Við boðum stóran hóp hjá A-liðinu en þeir sem spila lítið munu koma eitthvað við sögu í B-liðs leiknum. Leikirnir eru hluti af haustmóti KSÍ og er því um mótsleiki að ræða.
Lesa meira
g B-liðin tvö keppa innbyrðis. Báðir leikirnir fara fram á Gróttuvelli og hefst A-liðs leikurinn kl. 11:30 og B-liðs leikurinn 13:00. Við boðum stóran hóp hjá A-liðinu en þeir sem spila lítið munu koma eitthvað við sögu í B-liðs leiknum. Leikirnir eru hluti af haustmóti KSÍ og er því um mótsleiki að ræða.
Lesa meira
Magnús Örn og Orri áfram þjálfarar hjá Gróttu
Ungu þjálfaranir Magnús Örn Helgason og Orri Axelsson hafa verið endurráðnir hjá Knattspyrnudeild Gróttu fyrir yngri flokka starfið hjá stelpunum og strákunum fyrir næsta tímabil. Magnús mun þjálfa 3. flokk kvenna og vera aðstoðarþjálfari í 4. flokk karla. Orri mun þjálfa 4. flokk kvenna og 8. flokk kvenna og karla ásamt því að vera aðstoðarþjálfari í 6. og 7. flokki karla.
Lesa meira

