6.flokkur kvenna

7. flokkur á VÍS-mótinu

13.12.2011 Knattspyrnudeild : Jólafrí knattspyrnudeildar

Núna fer að styttast í jólin. Seinustu æfingar fyrir jólafrí hjá knattspyrnudeild verða mánudaginn 19.desember. Fyrstu æfingar eftir jólafrí verða miðvikudaginn 4.janúar. Á þetta við um 8.flokk til 3.flokks karla og kvenna. Lesa meira
 
Orri Axelsson þjálfari ræðir við liðið í hálfleik

3.10.2011 Knattspyrnudeild : Bloggsíður einstakra flokka í knattspyrnu

Upplýsingagjöf til foreldra og iðkenda verður með nýju sniði en allir flokkar hjá knattspyrnudeild Gróttu fá bloggsíðu. Bloggsíðurnar má sjá ef smellt er á lesa meira. Þjálfarar verða duglegir að setja upplýsingar um starfið, breytingar á æfingatímum, upplýsingar um mót o.fl. inn á bloggsíðurnar. Áfram verður þó góður fréttaflutningur af deildinni hérna á heimasíðu félagsins. Lesa meira
 
Grótta á Símamótinu2

21.9.2011 Knattspyrnudeild : Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar 2011

Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar fer fram sunnudaginn 25.september kl.16.00 í íþróttahúsi Seltjarnarness. Dagskráin verður hefðbundin, allir iðkendur í 6., 7. og 8. flokki fá þátttökuviðurkenningu og verðlaun verða veitt fyrir framfarir og ástundun í 5. - 2. flokki. Að því loknu verður boðið upp á kökuhlaðborð Gróttuforeldra. Á upperskuhátíðinni kynnum við nýja þjálfara og kveðjum þá sem eru að hætta. Foreldrar, systkini, afar og ömmur og aðrir velunnarar Gróttukrakkanna eru velkomnir á uppskeruhátíðina.
Lesa meira
 
6. flokkur kvenna á VÍS-mótinu

7.6.2011 Knattspyrnudeild : Yngstu fótboltakrakkarnir á VÍS-mótinu

Helgina 28-29 maí fór fram VÍS-mótið í Laugardal en það er haldið fyrir 6. og 7. flokk karla og kvenna. Grótta sendi samtals níu lið til leiks og stóðu krakkarnir sig að sjálfsögðu með stakri prýði. Mótið er góð byrjun á sumrinu og fín æfing fyrir krakkana. Öll lið fengu að spila 5-6 leiki en á mótum sem þessum eru framfarir liðanna oft miklar. Lesa meira
 
ksi20logo

25.5.2011 Knattspyrnudeild : Tækniskóli KSÍ á föstudaginn

Það verður mikið um dýrðir á Gróttuvelli á föstudag en þá fer fram formleg afhending á nýjum DVD-disk, "Tækniskóli KSÍ", Diskurinn er gefinn öllum knattspyrnukrökkum 16 ára og yngri en á honum má finna ýmsar gagnlegar tækniæfingar ásamt viðtölum við landsliðsmenn Íslands í fótbolta. Á föstudaginn er komið að því að afhenda iðkendum Gróttu diskinn en leikmenn meistaraflokks Gróttu munu mæta á svæðið ásamt einstaklingum úr U-21 árs landsliðinu og heilsa upp á krakkana. Dagskráin hefst kl. 15:00 og eru allir iðkendur í 3.-8. flokki eru velkomnir.

Lesa meira

 
5.fl. kvenna 2.sæti D-lið

9.3.2011 Knattspyrnudeild : 5. og 6.flokkur kvenna á Goðamótinu

Helgina 4.-6.mars sl. fóru 5.flokkur og 6.flokkur kvenna norður til Akureyrar á Goðamótið sívinsæla. Það voru því 15 stúlkur fæddar 1999, 2000 og 2001 sem fóru fyrir hönd Gróttu á mótið með fararstjóra og þjálfara liðsins, Inga Þór. Grótta tefldi fram tveimur liðum á mótinu, Gróttu 1 (B-lið) og Gróttu 2 (D-lið).

Lesa meira

 
fótbolti

10.11.2009 Knattspyrnudeild : Séræfingar / tækniæfingar á laugardögum

Á laugardögum í vetur verða séræfingar fyrir alla iðkendur yngri flokka í fótboltanum. Æfingar verða þannig uppbyggðar að tækni og boltameðerð verða í hávegum hafðar. Ekkert strit heldur einungis verið að vinna með boltann. Leikmenn meistaraflokks munu sjá um þessar æfingar í vetur og á laugardaginn munu þeir Grétar Ali Khan og Pétur Már Harðarson sjá um æfingarnar. Lesa meira
 
paejumot1

24.9.2009 Knattspyrnudeild : Uppskeruhátíð fótboltans á sunnudaginn

Sunnudaginn 27. sept verður uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Gróttu haldin í Íþróttahúsinu. Hátíðin hefst kl. 16.00. Veitt verða verðlaun og viðurkenningar í öllum flokkum. Að verðlaunaafhendingu lokinni þá verður kökuhlaðborð í hátíðarsal Gróttu. Að venju þá koma kökurnar frá iðkendunum sjálfum. Þá sér hver iðkandi um að koma með eitthvað til að setja á hlaðborðið. Lesa meira
 
Grotta-Hvot1

10.9.2009 Knattspyrnudeild : Grótta þarf 1 stig til að komast í 1.deild

Á laugardaginn kemur verður 21. umferð Íslandsmóts 2. deildar karla leikin. Úrslitin geta ráðist í þessari umferð, bæði á toppi og botni deildar. Grótta leikur við Víði í Garðinu og þarf eitt stig til að tryggja sæti í 1.deild að ári. Með sigri getur liðið farið langleiðina með að tryggja sér titilinn í ár en þó fer það eftir úrslitum annarra leikja í umferðinni. En allir Gróttarar, nær og fjær, eru hvattir til að koma í Garðinn og styðja strákana til sigurs. Þetta er síðasti útileikurinn og nú þarf Grótta á stuðningi að halda. Leikurinn fer fram á laugardag og hefst kl. 12 í Garðinum! Allir að mæta! Áfram Grótta! Lesa meira
 
Hrund og Hilmar

6.9.2009 Knattspyrnudeild : Hrund Jónsdóttir ráðinn þjálfari hjá Gróttu

Hrund Jónsdóttir hefur verið ráðin þjálfari hjá Knattspyrnudeild Gróttu fyrir yngri flokka starfið hjá stelpunum. Hrund er 25 ára og er uppalin í vesturbæ. Hún byrjaði að æfa fótbolta með KR þegar hún var 12 ára og spilaði með KR til 20 ára aldurs. Lesa meira
 
ksi20logo

4.9.2009 Knattspyrnudeild : Grótta er einum sigri frá 1.deild

Á morgun taka Gróttumenn á móti BÍ/Bolungarvík í 20.umferð 2.deildar karla. Með sigri tryggir Grótta sér sæti í 1.deild að ári. Það þarf því ekkert að fjölyrða neitt frekar um mikilvægi leikins á morgun. Gestirnir eiga enn möguleika á að komast upp og því verður klárlega um hörkuleik að ræða. Strákarnir í Gróttunni þurfa því á miklum stuðningi að halda og eru því allir hvattir til að mæta og hvetja strákana áfram. Leikurinn hefst kl. 14 og fer fram á Gróttuvelli. Áfram Grótta! Lesa meira
 
6.fl.kk Maraton1

23.6.2009 Knattspyrnudeild : Sumarmót yngri flokka komin á fullt

Nú standa yfir sumarmótin árlegu hjá yngri flokkum landsins. Gróttan missir ekki af neinu þar og núna um síðastliðnu helgi var 7.flokkur karla á Kaupþingsbankamótinu á Akranesi og 3.flokkur kvenna fór norður til Siglufjarðar á Miðnæturmótið. Von er á ferðasögu frá stelpunum á næstu dögum. En strákarnir fóru á Skagann síðastliðinn föstudag og voru fjögur lið send til keppni í A, C, D og E liðum. E liðið var að mestu leyti skipað strákum úr 8.flokki sem hafa verið að æfa með 7.flokki í vetur. Afskaplega skemmtilegt lið sem að náði því að komast í Íslensku deildina (efsta deild) á laugardeginum. Lesa meira
 

28.5.2009 Knattspyrnudeild : Framkvæmdir við hlaupabraut hafnar

Knattspyrnudeild vill vekja athygli á því að þar sem að framkvæmdir við hlaupabraut á vallarsvæðinu eru hafnar þá mun aðgangur að svæðinu vera takmarkaður. Verið er að vinna með hættuleg og dýr efni sem mega ekki við skemmdum af völdum bolta eða umgangs á vinnusvæðinu. Þar með verða æfingar yngstu flokkanna annaðhvort inni eða á sparkvöllum bæjarins. Þjálfarar gefa allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag æfinga. Við biðjum velvirðingar á þeirri röskun sem kemur til með að vera á næstu dögum en um leið óskum eftir þolinmæði og skilningi vegna þessa. Lesa meira
 
Meistaraflokkur Gróttu 2009

20.5.2009 Knattspyrnudeild : Grótta - Hamar á morgun í 2.deildinni

Gróttumenn leika sinn annan leik á Íslandsmótinu á morgun þegar þeir taka á móti liði Hamars úr Hveragerði. Leikurinn hefst kl. 14 og fer fram á gervigrasvellinum við Suðurströnd. Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða þar sem að Gróttumenn fengu aðeins eitt stig út úr fyrsta leiknum í deildinni og vilja klárlega koma sér á beinu brautina með sigri á morgun. Hamarsmenn koma af krafti í þennan leik eftir tap í fyrstu umferð. Hvetjum alla til að koma á leikinn! Lesa meira
 
ksi20logo

3.5.2009 Knattspyrnudeild : Grótta meistari B-deildar Lengjubikarsins!

Meistaraflokkur Gróttu í knattspyrnu sigraði lið Fjarðabyggðar í úrslitaleik B-deildar Lengjubikarsins núna í dag en leikurinn fór fram í Boganum á Akureyri. Leikurinn endaði með 1-2 sigri Gróttu en Ásgrímur Sigurðsson skoraði en hitt markið var sjálfsmark. Þetta er í fyrsta skipti sem að Grótta sigrar Lengjubikarinn og í fyrsta skipti í 18 ár sem að meistaraflokkur Gróttu sigrar í móti utanhúss á vegum KSÍ. Nánari umfjöllun um leikinn kemur von bráðar. Lesa meira
 

Útlit síðu:



fotbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.