Jólafrí knattspyrnudeildar
Núna fer að styttast í jólin. Seinustu æfingar fyrir jólafrí hjá knattspyrnudeild verða mánudaginn 19.desember. Fyrstu æfingar eftir jólafrí verða miðvikudaginn 4.janúar. Á þetta við um 8.flokk til 3.flokks karla og kvenna.
Lesa meira
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar 2011
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar fer fram sunnudaginn 25.september kl.16.00 í íþróttahúsi Seltjarnarness. Dagskráin verður hefðbundin, allir iðkendur í 6., 7. og 8. flokki fá þátttökuviðurkenningu og verðlaun verða veitt fyrir framfarir og ástundun í 5. - 2. flokki. Að því loknu verður boðið upp á kökuhlaðborð Gróttuforeldra. Á upperskuhátíðinni kynnum við nýja þjálfara og kveðjum þá sem eru að hætta. Foreldrar, systkini, afar og ömmur og aðrir velunnarar Gróttukrakkanna eru velkomnir á uppskeruhátíðina.
Lesa meira
Lesa meira
Tækniskóli KSÍ á föstudaginn
Það verður mikið um dýrðir á Gróttuvelli á föstudag en þá fer fram formleg afhending á nýjum DVD-disk, "Tækniskóli KSÍ", Diskurinn er gefinn öllum knattspyrnukrökkum 16 ára og yngri en á honum má finna ýmsar gagnlegar tækniæfingar ásamt viðtölum við landsliðsmenn Íslands í fótbolta. Á föstudaginn er komið að því að afhenda iðkendum Gróttu diskinn en leikmenn meistaraflokks Gróttu munu mæta á svæðið ásamt einstaklingum úr U-21 árs landsliðinu og heilsa upp á krakkana. Dagskráin hefst kl. 15:00 og eru allir iðkendur í 3.-8. flokki eru velkomnir.
Grótta þarf 1 stig til að komast í 1.deild
Á laugardaginn kemur verður 21. umferð Íslandsmóts 2. deildar karla leikin. Úrslitin geta ráðist í þessari umferð, bæði á toppi og botni deildar. Grótta leikur við Víði í Garðinu og þarf eitt stig til að tryggja sæti í 1.deild að ári. Með sigri getur liðið farið langleiðina með að tryggja sér titilinn í ár en þó fer það eftir úrslitum annarra leikja í umferðinni. En allir Gróttarar, nær og fjær, eru hvattir til að koma í Garðinn og styðja strákana til sigurs. Þetta er síðasti útileikurinn og nú þarf Grótta á stuðningi að halda. Leikurinn fer fram á laugardag og hefst kl. 12 í Garðinum! Allir að mæta! Áfram Grótta!
Lesa meira
Grótta er einum sigri frá 1.deild
Á morgun taka Gróttumenn á móti BÍ/Bolungarvík í 20.umferð 2.deildar karla. Með sigri tryggir Grótta sér sæti í 1.deild að ári. Það þarf því ekkert að fjölyrða neitt frekar um mikilvægi leikins á morgun. Gestirnir eiga enn möguleika á að komast upp og því verður klárlega um hörkuleik að ræða. Strákarnir í Gróttunni þurfa því á miklum stuðningi að halda og eru því allir hvattir til að mæta og hvetja strákana áfram. Leikurinn hefst kl. 14 og fer fram á Gróttuvelli. Áfram Grótta!
Lesa meira
Sumarmót yngri flokka komin á fullt
Nú standa yfir sumarmótin árlegu hjá yngri flokkum landsins. Gróttan missir ekki af neinu þar og núna um síðastliðnu helgi var 7.flokkur karla á Kaupþingsbankamótinu á Akranesi og 3.flokkur kvenna fór norður til Siglufjarðar á Miðnæturmótið. Von er á ferðasögu frá stelpunum á næstu dögum. En strákarnir fóru á Skagann síðastliðinn föstudag og voru fjögur lið send til keppni í A, C, D og E liðum. E liðið var að mestu leyti skipað strákum úr 8.flokki sem hafa verið að æfa með 7.flokki í vetur. Afskaplega skemmtilegt lið sem að náði því að komast í Íslensku deildina (efsta deild) á laugardeginum.
Lesa meira
Framkvæmdir við hlaupabraut hafnar
Knattspyrnudeild vill vekja athygli á því að þar sem að framkvæmdir við hlaupabraut á vallarsvæðinu eru hafnar þá mun aðgangur að svæðinu vera takmarkaður. Verið er að vinna með hættuleg og dýr efni sem mega ekki við skemmdum af völdum bolta eða umgangs á vinnusvæðinu. Þar með verða æfingar yngstu flokkanna annaðhvort inni eða á sparkvöllum bæjarins. Þjálfarar gefa allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag æfinga. Við biðjum velvirðingar á þeirri röskun sem kemur til með að vera á næstu dögum en um leið óskum eftir þolinmæði og skilningi vegna þessa.
Lesa meira
Grótta - Hamar á morgun í 2.deildinni
Gróttumenn leika sinn annan leik á Íslandsmótinu á morgun þegar þeir taka á móti liði Hamars úr Hveragerði. Leikurinn hefst kl. 14 og fer fram á gervigrasvellinum við Suðurströnd. Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða þar sem að Gróttumenn fengu aðeins eitt stig út úr fyrsta leiknum í deildinni og vilja klárlega koma sér á beinu brautina með sigri á morgun. Hamarsmenn koma af krafti í þennan leik eftir tap í fyrstu umferð. Hvetjum alla til að koma á leikinn!
Lesa meira
Grótta meistari B-deildar Lengjubikarsins!
Meistaraflokkur Gróttu í knattspyrnu sigraði lið Fjarðabyggðar í úrslitaleik B-deildar Lengjubikarsins núna í dag en leikurinn fór fram í Boganum á Akureyri. Leikurinn endaði með 1-2 sigri Gróttu en Ásgrímur Sigurðsson skoraði en hitt markið var sjálfsmark. Þetta er í fyrsta skipti sem að Grótta sigrar Lengjubikarinn og í fyrsta skipti í 18 ár sem að meistaraflokkur Gróttu sigrar í móti utanhúss á vegum KSÍ. Nánari umfjöllun um leikinn kemur von bráðar.
Lesa meira
Árni Ingi Pjetursson kominn til Gróttu
Gengið var í dag frá félagaskiptum fyrir Árna Inga Pjetursson úr ÍA yfir í Gróttu. Árni Ingi er Gróttumönnum vel kunnugur en hann lék með liðinu sumarið 2007. Árni Ingi er er þrítugur sóknarmaður og er mikill fengur fyrir liðið og félagið. Í millitíðinni lék Árni með ÍA í Landsbankadeildinni. Meðal liða sem Árni hefur spilað fyrir eru KR, Fram, Valur og ÍR. Árni á að baki 26 leiki fyrir U19 ára landsliðið og 20 fyrir U17. Árni Ingi var á sínum tíma sá yngsti til að spila í úrvalsdeild en hann var þá rúmlega 15 ára gamall er hann lék sinn fyrsta leik fyrir KR.
Lesa meira
Páskafrí yngstu flokkanna í fótboltanum
Páskafrí verður hjá 5.-8.flokki í fótboltanum eins og í skólanum. Þetta á bæði við um stráka og stelpur. Æfingar hefjast að nýju þriðjudaginn eftir páska.
Lesa meira
Lengjubikarinn hefst á föstudaginn
Á föstudaginn kemur hefst knattspyrnutímabilið formlega hjá meistaraflokknum í fótboltanum þegar að liðið tekur á móti Víði í Lengjubikarnum (deildabikarinn). Leikurinn fer fram í Kórnum og hefst hann kl. 20.30. Gróttuliðið hefur verið að æfa vel frá því í nóvember undir stjórn þeirra Ásmundar Haraldssonar og Bjarna Jakob Stefánssonar. Stór hópur hefur verið við æfingar og þó nokkur liðsauki bæst við frá því í fyrra. Kristján Finnbogason, fyrrum markvörður KR og landsliðsins fer þar fremstur í flokki. Einnig hefur Edilon Hreinsson ákveðið að ganga til liðs við félagið en gengið verður frá félagaskiptum í vikunni.
Lesa meira
Úrslit úr leikjum helgarinnar í fótboltanum
Það voru fjölmargir leikir spilaðir um helgina hjá flest öllum flokkum í fótboltanum. Á föstudagskvöldið tók 2.flokkur á móti firnasterku liði HK en beið lægri hlut. Á laugardaginn tók svo 4.flokkur karla á móti hinu Kópavogsliðinu, Breiðabliki, en þeir hafa ávallt á sterkum liðum að skipa. A-liðið tapaði en B-liðið var með góðan sigur. C-lið laut síðan einnig í gras fyrir Breiðabliki. Meistaraflokkur sigraði síðan landslið U17 nokkuð örugglega 4-1 en mörkin skoruðu Pétur Már Harðarson úr KR, sem er á reynslu hjá liðinu og síðan skoruðu þeir Jason Már Bergsteinsson og Guðmundur Hannesson sitt markið hvor.
Lesa meira
5.flokkur í 3.-4. sæti á Íslandsmótinu innanhúss
Strákarnir í 5.flokki Gróttu tóku þátt í Íslandsmótinu innanhúss um helgina en leikið er samkvæmt "futsal" reglum KSÍ. Helgina áður komst Grótta uppúr riðlakeppninni með því að vinna tvo leiki og gera eitt jafntefli en það tryggði sigur í riðlinum. Núna um helgina komst Grótta uppúr riðli með Víkingi, Val og Álftanesi og komst þar af leiðandi í undanúrslitaleik gegn Breiðabliki en okkar menn sáu aldrei til sólar í þeim leik enda Blikarnir með firnasterkt lið og enduðu sem sigurvegarar á mótinu.
Lesa meira
Kristján Finnbogason genginn til liðs við Gróttu
Kristján Finnbogason, fyrrum landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er genginn til liðs við Gróttu og mun hann leika með liðinu í 2.deildinni næstkomandi sumar. Kristján, sem er borinn og barnfæddur Seltirningur, mun því enda knattspyrnuferil sinn í uppeldis-og æskufélagi sínu Gróttu, eins og til stóð.
Lesa meira

