Sumarnámskeið Gróttu hefjast í júní
Eins og undanfarin ár er Grótta með sumarnámskeið í öllum deilum. Fimleikadeildin og knattspyrnudeildin bjóða upp á námskeið strax í júní. Knattspyrnunámskeiðin halda áfram sleitulaust til loka júlí. Eftir verslunarmannahelgi byrjar handboltanámskeiðin og fimleikanámskeiðin halda áfram. Nánar um sumarnámskeið Gróttu ef smellt er á lesa meira.
Lesa meira
Handboltaskóli og afreksæfingar Gróttu 2010
Skráning er hafin í handboltaskóla og afreksæfingar Gróttu. Dagana 3. - 20.ágúst fer fram Handboltaskóli Gróttu fyrir krakka fædda 2004-1998. Í handboltaskólanum verður börnum skipt niður eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers aldurs fyrir sig. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa. Byrjendur er sérstaklega velkomnir. Samhliða handboltaskólanum verða afreksæfingar fyrir iðkendur fædda 1995-1997. Á þeim æfingum verður farið í skot- og tækniæfingar en einnig ýmsir fræðslufyrirlestrar.
Lesa meira
Sumarstarf Gróttu hefst í júní
Sumarstarf Gróttu hefst um leið og skóla lýkur hérna á Nesinu. Allar deildir félagsins bjóða upp á námskeið í sumar en fimleikadeild og knattspyrnudeild bjóða upp á námskeið strax í júní. Knattspyrnunámskeiðin halda áfram sleitulaust til loka júlí. Nánar um sumarnámskeið Gróttu ef smellt er á lesa meira.
Lesa meira
Afreksæfingar Gróttu 2009: 10.- 21.ágúst nk.
Afreksæfingar Gróttu í handboltanum verða haldnar dagana 10. - 21. ágúst næstkomandi fyrir þá sem eru fæddir á árunum 1994 - 1996. Æfingarnar verða þrisvar sinnum í viku frá kl. 10:30 - 12:30. Æft er mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Innihald æfinganna eru fræðslufyrirlestrar, styrktaræfingar, skot- og tækniæfingar o.fl. Umsjónarmenn verða Davíð Örn Hlöðversson og Arndís María Erlingsdóttir.
Lesa meira
Handboltaskóli Gróttu 2009: 10.-21.ágúst nk.
Handboltaskóli Gróttu verður í 2 vikur þetta árið. Í skólanum verður börnunum skipt niður eftir aldri. Með þessu móti ætlum við að reyna að koma til móts við þarfir hvers aldurs fyrir sig. Farið verður í algjör grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn en eftir því sem krakkarnir eru eldri, því flóknari verða æfingarnar. Skólinn er fyrir krakka sem verða í 1.- 7.bekk næsta vetur (fædda 2003-1997).
Lesa meira
Knattspyrnuskóli Gróttu uppfyllir gæðakröfur KSÍ og UEFA
Ásmundur Haraldsson, yfirþjálfari Gróttu, veitti viðtöku viðurkenningar frá KSÍ vegna knattspyrnuskóla félagsins. Knattspyrnuskólinn uppfyllti gæðamat KSÍ og gæðakröfur fyrir knattspyrnuskóla sem settar eru fram í Grasrótarsáttmála UEFA. Þeir Guðlaugur Gunnarsson og Dagur Sveinn Dagbjartsson frá KSÍ afhentu félaginu viðurkenningu undirritaða af framkvæmdastjóra KSÍ. Myndin var tekin af því tilefni en gestir knattspyrnuskólans þennan daginn voru þeir Kristján Finnbogason og Tryggvi Guðmundsson og eru þeir með hópnum á myndinni ásamt Ásmundi sem heldur á viðurkenningunni.
Lesa meira
Brynjar Björn heimsótti Afreksskólann í morgun
Landsliðsmaðurinn og leikmaður Reading í Englandi, Brynjar Björn Gunnarsson, heimsótti Afreksskóla Gróttu í morgun. Hann var með krökkunum á æfingu og leiðbeindi þeim eins og mögulegt var. Hápunkturinn var þó tvímælalaust þegar að farið var í vítaspyrnukeppni þar sem að Brynjar stóð sjálfur vaktina í markinu. Brynjar þótti efnilegur markmaður þegar hann var á svipuðum aldri og krakkarnir þannig að hann sýndi smá takta í netinu. Að lokum var það Viktor Orri Pétursson leikmaður 5.flokks sem að bar sigur úr býtum og hlaut að launum landsliðstreyju númer 7 en í henni lék Brynjar gegn Makedóníu fyrir fáeinum dögum.
Lesa meira
Sigurður Ragnar í heimsókn í Afreksskólanum í dag
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu var gestur á Afreksskólanum í morgun. Hann var með 80 mínútna æfingu og tók svo létt spjall við krakkana í lokin. Mikill fengur fyrir Gróttu að fá mann eins og Sigurð til að koma og spjalla við krakkana. Í gær komu þeir Jónas Guðni Sævarsson fyrirliði KR og Bjarni Guðjónsson og voru með krökkunum í skotæfingum og vítaspyrnukeppnum. Í lok vikunnar mun síðan Ólafur Kristjánsson koma í heimsókn í Afreksskólann. Kristján Finnbogason markvörður Gróttu mun síðan vera gestur knattspyrnuskólans á föstudaginn kemur. Hann kemur síðan aftur í skólann ef einhverjir missa af honum í þessari viku.
Lesa meira
Góðir gestir í Afreksskóla knattspyrnudeildar
það verða engir smá gestir í Afreksskólanum í næstu viku en á mánudaginn kemur Logi Ólafsson þjálfari KR og fyrrverandi landsliðsþjálfari. Með honum í för verður knattspyrnugoðsögnin Pétur Pétursson og ef krakkarnir vita ekki hver hann er þá verða menn að grípa í Íslensk Knattspyrna og fletta uppá kappanum. Á þriðjudag kemur svo landsliðsþjálfari kvenna Sigurður Ragnar Eyjólfsson en hann fer með A-landslið kvenna á EM í sumar í Finnlandi.
Lesa meira
Afreksskóli knattspyrnudeildar sumarið 2009
Í sumar verður boðið upp á sérstakan afreksskóla fyrir stráka og stelpur í 5.flokki og 4.flokki en það eru krakkar sem voru að klára 5.-8. bekk í vor. Æft verður 3x í viku fyrir hádegi í 4 vikur. Æfingarnar verða að mörgu leyti öðruvísi en hefðbundnar fótboltaæfingar en meðal annars verður farið í tækni, leikfræði, og annað tengt fótboltanum. Krakkarnir æfa þá tvisvar á dag með hefðbundnum æfingum en æfing að morgni til gæti verið fyrirlestur eða tækniæfing útá velli.
Lesa meira
Knattspyrnuskóli Gróttu sumarið 2009
Knattspyrnudeild verður með knattspyrnuskóla fyrir krakka fædd á árunum 1998 til 2002 en það eru krakkar sem verða í 1.-5. bekk næsta haust. Knattspyrnuskólinn er frá kl. 9:00-12:00 frá mánudegi til föstudags. Margt verður til gamans gert, m.a. munu þekkt andlit kíkja í heimsókn en að auki verða margs konar keppnir s.s. HM, vítakeppni og knattþrautir. Lögð verður áhersla á að kenna grunnþætti knattspyrnunnar með skemmtilegum leikjum og æfingum.
Lesa meira
Handknattleiksskóli Gróttu 2008: 11.-20.ágúst
Handknattleiksdeild verður með handknattleiksskóla fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára (fædda 2002-1996), bæði stráka og stelpur. Handknattleiksskóli Gróttu verður frá kl. 9:00 - 12:00 á morgnana en boðið verður upp á gæslu á milli 8:15 - 9:00 og 12:00 - 12:30. Skólinn hefst mánudaginn 11.ágúst og lýkur miðvikudaginn 20.ágúst með grillveislu. Skólastjóri verður Arnar Freyr Theodórsson, íþróttakennari og nýr liðsmaður meistaraflokks karla í handbolta. Frábærir leiðbeinendur munu aðstoða hann við skólann.
Lesa meira
Afreksskóli Knattspyrnudeildar
Í sumar verður boðið upp á sérstakan afreksskóla fyrir stráka og stelpur í 5.flokki og 4.flokki en það eru krakkar sem voru að klára 5.-8. bekk í vor. Æft verður 3x í viku fyrir hádegi í 6 vikur. Æfingarnar verða að mörgu leyti öðruvísi en hefðbundnar fótboltaæfingar en meðal annars verður farið í tækni, leikfræði, næringarfræði og annað tengt fótboltanum.
Lesa meira
Knattspyrnuskóli Gróttu
Knattspyrnudeild verður með knattspyrnuskóla fyrir krakka fædd á árunum 1998 til 2002 en það eru krakkar sem verða í 1.-5. bekk næsta haust. Knattspyrnuskólinn er frá kl. 9:00-12:00 frá mánudegi til föstudags. Margt verður til gamans gert, m.a. munu þekkt andlit kíkja í heimsókn en að auki verða margs konar keppnir s.s. HM, vítakeppni og knattþrautir. Lögð verður áhersla á að kenna grunnþætti knattspyrnunnar með skemmtilegum leikjum og æfingum.
Lesa meira
Fimleikanámskeið í sumar fyrir 6-11 ára stúlkur 2008
Fimleikadeild Gróttu verður með fimm námskeið fyrir 6-11 ára stúlkur (f.1997-2002) í sumar. Námskeiðin eru ætluð stúlkum sem að æfðu fimleika í vetur og eru kl. 9-12 alla virka morgna. Stúlkunum verður skipt í hópa á æfingunum eftir aldri og færni í fimleikaæfingum. María Björg Magnúsdóttir, Sesselja Järvelä og Sigríður Harðardóttir hafa umsjón með námskeiðunum. Auk þess koma aðrir þjálfarar hjá fimleikadeildinni inn í þjálfunina.
Lesa meira

