Sumarnámskeið

Afreksskóli knattspyrnudeildar sumarið 2009

23.5.2009

Í sumar verður boðið upp á sérstakan afreksskóla fyrir stráka og stelpur í 5.flokki og 4.flokki en það eru krakkar sem voru að klára 5.-8. bekk í vor. Æft verður 3x í viku fyrir hádegi í 4 vikur. Æfingarnar verða að mörgu leyti öðruvísi en hefðbundnar fótboltaæfingar en meðal annars verður farið í tækni, leikfræði, og annað tengt fótboltanum. Krakkarnir æfa þá tvisvar á dag með hefðbundnum æfingum en æfing að morgni til gæti verið fyrirlestur eða tækniæfing útá velli.

Góðir gestir og atvinnumenn munu koma í heimsókn og ræða við krakkana um hin ýmsu málefni. Síðastliðið sumar voru þeir Heimir Guðjónsson, Heiðar Helguson, Tryggvi Guðmundsson, Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Kristján Finnbogason meðal gesta. Aðalatriðið er að krakkarnir fái öðruvísi kennslu í knattspyrnu og aðra sýn á íþróttina.

Æft verður mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá 10:30-12:00.

Verð fyrir 4 vikur er 12 þús en einstök vika kostar 3500 krónur. Ef um systkini er að ræða þá er borgað fullt gjald fyrir fyrsta barn, hálft fyrir annað barn og þriðja barn fær frítt.

Námskeiðið hefst mánudaginn 8.júní kl. 10:00. Námskeiðinu lýkur svo miðvikudaginn 1. júlí. Skólastjóri og aðalleiðbeinandi verður Ásmundur Haraldsson, yfirþjálfari knattspyrnudeildar og aðalþjálfari meistaraflokks Gróttu (KSÍ UEFA A).

Skráning er hafin á námskeiðið. Nóg er að senda nafn iðkanda á asmundur@grottasport.is. Upplýsingar um greiðslutilhögun verður síðan send útá tölvupósti þegar nær dregur.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.