Sumarnámskeið
Fimleikanámskeið í sumar fyrir 7-14 ára drengi 2008
Fimleikadeild
Fimleikadeild Gróttu verður með þriggja vikna námskeið 9.-27. júní fyrir 7-14 ára drengi (f. 1994-2001). Námskeiðið er ætlað drengjum sem að æfðu fimleika í vetur og er kl. 9-12 alla virka morgna. Constantin Antonov og Olof Johansson hafa umsjón með námskeiðinu.
Skráning fer fram með því að senda skráningu á fimleikar@grottasport.is fyrir 15. maí. Einnig er hægt að nálgast skráningarblað hjá þjálfurum fimleikadeildar.
Námskeiðið kostar 12.000.- krónur. Það er mögulegt að vera á námskeiðinu í eina eða tvær vikur, þá kostar hver vika 5.000.- krónur.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um námskeiðið með því að senda póst á fimleikar@grottasport.is eða hringja í Sesselju í síma 893-6658 á miðvikudögum á milli kl. 11 og 12.

