Sumarnámskeið

Knattspyrnuskóli Gróttu

Knattspyrnudeild

9.5.2008

Knattspyrnudeild verður með knattspyrnuskóla fyrir krakka fædd á árunum 1998 til 2002 en það eru krakkar sem verða í 1.-5. bekk næsta haust. Knattspyrnuskólinn er frá kl. 9:00-12:00 frá mánudegi til föstudags. Margt verður til gamans gert, m.a. munu þekkt andlit kíkja í heimsókn en að auki verða margs konar keppnir s.s. HM, vítakeppni og knattþrautir. Lögð verður áhersla á að kenna grunnþætti knattspyrnunnar með skemmtilegum leikjum og æfingum. Skólastjóri knattspyrnuskólans er Ásmundur Haraldsson, yfirþjálfari knattspyrnudeildar og aðalþjálfari meistaraflokks Gróttu (KSÍ UEFA A) en aðalleiðbeinendur skólans verða þeir Orri Axelsson og Atli Freyr Sveinsson ásamt ungum og efnilegum þjálfurum úr 3.flokki félagsins.

Knattspyrnuskóli Gróttu fyrir krakka í 8.fl., 7.flokki og 6.flokki.

Námskeið 1       9. - 20. júní
Námskeið 2      23. júní - 4. júlí
Námskeið 3       7. júlí - 18. júlí
Námskeið 4       21. júlí - 1. ágúst

Verð kr. 4500. Systkinaafsláttur er 20%.

Innritun fer fram í Selinu dagana 27.-29. maí frá kl. 10:00 ? 16:00.

Foreldrar athugið! Börnum er boðið upp á að sameina leikjanámskeið og knattspyrnuskólann og kostar það einungis 8.000 krónur (allur dagurinn). Börn sem eru á leikjanámskeiði og hafa áhuga á að komast í knattspyrnuskólann geta með þessu móti slegið tvær flugur í einu höggi. Þetta tilboð gildir einungis fyrir börn sem eru allan daginn á námskeiðum hjá Seltjarnarnesbæ.
Upplýsingar í síma 595 9177 og 595 9178.

 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.