Sumarnámskeið
Afreksskóli Knattspyrnudeildar
Knattspyrnudeild
Í sumar verður boðið upp á sérstakan afreksskóla fyrir stráka og stelpur í 5.flokki og 4.flokki en það eru krakkar sem voru að klára 5.-8. bekk í vor. Æft verður 3x í viku fyrir hádegi í 6 vikur. Æfingarnar verða að mörgu leyti öðruvísi en hefðbundnar fótboltaæfingar en meðal annars verður farið í tækni, leikfræði, næringarfræði og annað tengt fótboltanum.
Krakkarnir æfa þá tvisvar á dag með hefðbundnum æfingum en æfing að morgni til gæti verið fyrirlestur eða tækniæfing útá velli. Góðir gestir og atvinnumenn munu koma í heimsókn og ræða við krakkana um hin ýmsu málefni. Aðalatriðið er að krakkarnir fái öðruvísi kennslu í knattspyrnu og aðra sýn á íþróttina.
Æft verður þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá 10:30-12:00. Þegar farið er á mót er æft mán, þri og mið. Verð fyrir 6 vikur er 16 þús en einstök vika kostar 3000 krónur. Ef um systkini er að ræða þá er borgað fullt gjald fyrir fyrsta barn, hálft fyrir annað barn og þriðja barn fær frítt. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 10.júní kl. 10:00. Námskeiðinu lýkur svo fimmtudaginn 18. júlí.
Skólastjóri og aðalleiðbeinandi verður Ásmundur Haraldsson, yfirþjálfari knattspyrnudeildar og aðalþjálfari meistaraflokks Gróttu (KSÍ UEFA A).
Skráning er hafin! Vinsamlegast fylgið leiðbeiningunum hér að ofan varðandi verðlagningu á námskeiðunum. Þetta er ætti ekki að vera flókið. En ef þið hafið spurningar þá hafið samband við Ásmund í 899-8708 eða Kristínu í síma 561-1133.
Greitt er með millifærslu inná reikning knattspyrnudeildar 512-26-5001 kt. 500192-2679. Sendið síðan kvittun úr heimabanka á grotta@grottasport.is og setjið í skýringu "AS Nafn barns". Að því loknu sendið þið tölvupóst á asmundur@grottasport.is með upplýsingum um nafn þátttakanda og kennitölu þar sem að skráning á námskeiðið er þá staðfest.
Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega sendið tölvupóst á asmundur@grottasport.is

