Tómstundastyrkur
Tómstundastyrkur Seltjarnarnesbæjar - Íþróttafélagið Grótta
Íþróttafélagið Grótta
Tilgangur tómstundastyrkja
Meginmarkmið er að öllum börnum og ungmennum á Seltjarnarnesi verði auðveldað að sinna uppbyggilegu tómstundastarfi með sérstökum tómstundastyrkjum. Með tómstundastyrknum má greiða að hluta fyrir íþrótta-, lista- og tómstundaiðkun sem stundaðar eru á Seltjarnarnesi eða í nágrannasveitarfélögum. Innleiðing tómstundastyrkjanna er aukinn stuðningur við fjölskyldur, eykur valfrelsi barna og ungmenna, stuðlar að jöfnuði og gerir fleirum fært að stunda fleiri en eina tómstundaiðkun.
Skilyrði fyrir veitingu tómstundastyrkja
- Að styrkþegi hafi lögheimili á Seltjarnarnesi.
- Að styrkþegi sé á aldrinum 6 - 18 ára.
- Að um skipulagt starf/kennslu/þjálfun sé að ræða í a.m.k. 10 vikur og að ástundun sé að a.m.k. 70%.
- Staðfesting á greiðslu/kvittun fylgi umsókn vegna tómstundastyrkja. Á greiðslukvittun komi eftirfarandi fram: Nafn og kennitala félags, dags. greiðslu, fyrir hvað er verið að greiða, æfingatímabil, nafn og kennitala iðkenda.
- Styrkur getur aldrei orðið hærri en sem nemur æfingagjaldi/þátttökugjaldi viðkomandi íþrótta- eða tómstundagreinar.
- Tómstundastyrki er ekki heimilt að færa milli ára. Styrkur fellur niður sé ekki um hann sótt á því ári sem styrkþegi stundar íþrótt/tómstundir.
Reglur um notkun tómstundastyrkja
- Til að unnt sé að nýta tómstundastyrkina þarf að vera um að ræða skipulagt starf sem er stundað undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda og nær yfir eina önn eða að lágmarki 10 vikur. Þetta á t.d. við um allt íþróttastarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, dans í dansskólum, tónlistarskólum, listgreinar og skátastarf. Tómstundastyrkinn er hægt að nýta til kaupa á þriggja til tólf mánaða kortum í líkamsræktarstöðvum sé umsækjandi á aldrinum 15 - 18 ára. Önnur skipulögð námskeið innan líkamsræktarstöðva, sem uppfylla skilyrði tómstundastyrksins sbr. dansnámskeið falla undir styrkinn. Tómstundastyrkir eru að hámarki 25.000 kr. á ári. Hvert barn getur fengið tómstundastyrk vegna tveggja íþróttagreina/tómstunda, en framlagið getur þó aldrei orðið hærra en hámarksstyrkur.
- Framkvæmd endurgreiðslu
Styrkumsækjandi skal skila inn umsóknareyðublaði ásamt greiðslukvittun til bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi. Styrkumsóknir eru teknar til afgreiðslu þrisvar á ári og styrkir greiddir uppfylli þeir ofangreind skilyrði, í janúar, júní og september ár hvert.
Reglur þessar voru samþykktar á fundi Íþrótta- og tómstundaráðs Seltjarnarness þann 31. október 2008.
Umsóknareyðublöð um tómstundastyrk eru á heimasíðu bæjarins, http://rafraent.seltjarnarnes.is/
Haft verður samband við forráðamenn umsækenda ef eitthvað vantar á að umsóknin sé fullnægjandi.
________________________________________________________
Ef iðkandinn stundar sína tómstund hjá Gróttu, nægir að haka við auða línu neðst í umsókninni og skrifa: "Listi kemur frá Gróttu". Grótta sendir lista til ÍTS um alla iðkendur félagsins sem hafa greitt iðkendagjöld og eru með a.m.k. 70% æfingasókn.

