Grótta Íslandsmeistari í bekkpressu 2012
Íslandsmótið í bekkpressu fór fram á Akranesi laugardaginn 28. janúar sl. Kraftlyftingadeild Gróttu sendi átta keppendur að þessu sinni og má með sanni segja að árangurinn hafi verið góður. Aron Lee Du Teitsson og Fanney Hauksdóttir sýndu snilldartilþrif á mótinu og settu bæði glæsileg Íslandsmet.
Lesa meira
Gróttumessa á sunnudaginn
Á sunnudaginn verður Gróttumessa í Seltjarnarneskirkju en guðþjónustan mun verða helguð starfi Gróttu. Börn og unglingar félagsins lesa ritningarlestra og bænir, Guðjón Norðfjörð gjaldkeri aðalstjórnar flytur hugleiðingu og Haraldur Eyvinds formaður félagsins flytur ávarp og les lokabæn. Sóknarpresturinn, Sr. Bjarni Þór Bjarnason og organisti þjóna til altaris. Kór Mýrarhúsaskóla, Litlu snillingarnir syngja sem og félagar úr Kammerkór kirkjunnar.
Lesa meira
Miðasala á Þorrablótið gengur vel
Stemmningin er greinilega góð fyrir Þorrablótið og stefnir í flott kvöld. Gleðin verður allsráðandi og m.a. mun Björk Jakobs leikona vera með uppistand af bestu gerð. Þeir sem eiga enn eftir að tryggja sér miða verða að hafa snör handtök og hafa strax samband við skrifstofu Gróttu þar sem eingöngu 40 miðar eru eftir.
Lesa meira
Þorrablótið 28.janúar nk.
Þorrablótið verður haldið laugardaginn 28.janúar nk. í Félagsheimilinu líkt og undanfarin ár. Að vanda verður boðið upp á úrvals dagskrá þar sem stuðið verður allsráðandi. Miðasala og borðapantanir þegar komnar í gang - tryggið ykkur borð í tíma! Miðaverð aðeins 6500 kr en miðasala fer fram á skrifstofu Gróttu, s. 561-1133 eða grotta@grottasport.is.
Lesa meira
Æfingar hefjast að nýju
Æfingar hjá yngstu iðkendum í knattspyrnu og handknattleik hefjast um leið og skólinn, núna miðvikudaginn 4.janúar. Þá hefjast æfingar 1.-4.bekkjar samkvæmt tímatöflu. Um leið hefjast æfingar allra flokka í knattspyrnu. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá hverjum þjálfara fyrir sig.
- Pétur Theodór Árnason er Íþróttamaður æskunnar 2011
- Landsliðsfólk Gróttu verðlaunað
- Sérstakar viðurkenningar og bronsmerki Gróttu afhent
- Dominiqua Alma Belányi er Íþróttamaður Gróttu 2011
- Jólakveðja frá Gróttu
- Tilnefning til Íþróttamanns Gróttu: Rebekka Guðmundsdóttir
- Tilnefning til Íþróttamanns Gróttu: Kristján Finnbogason
- Tilnefning til Íþróttamanns Gróttu: Hrafnhildur Arna Nielsen
- Tilnefning til Íþróttamanns Gróttu: Dominiqua Alma Belányi
- Tilnefning til Íþróttamanns Gróttu: Árni Benedikt Árnason
- Stofnfundur og góður árangur kraftlyftingadeildar
- Stofnfundur Kraftlyftingadeildar Gróttu

