Aðalstjórn

Tilnefning til Íþróttamanns Gróttu: Sigurvin Ólafsson

Íþróttafélagið Grótta

22.12.2009

Síðasti en ekki sísti einstaklingurinn til að vera tilnefndur til Íþróttamanns Gróttu er knattspyrnukappinn Sigurvin Ólafsson. Sigurvin er fæddur árið 1976 og er uppalinn Eyjapeyji. Ungur að árum fór Siguvin til Stuttgart í Þýskalandi þar sem að hann lék sem atvinnumaður. Sigurvin fluttist síðar heim þar sem að hann lék með ÍBV, Fram, KR og nú síðast FH áður en hann gekk til liðs við Gróttu fyrir tímabilið 2008.

Siguvin hefur, líkt og Kristján Finnbogason, orðið margfaldur Íslands- og bikarmeistari með sínum félögum og leikið 7 A landsleiki ásamt því að leika fyrir yngri landsliðin.

Sigurvin lék 20 leiki í sumar og skoraði í þeim 13 mörk. Það er þó nokkuð gott fyrir djúpan miðjumann. Sigurvin var algjör lykilmaður í leik liðsins í sumar og stjórnaði sóknarleik liðsins með sinni frábæru útsjónarsemi og frábæru sendingum. Sigurvin er einkar sparkviss og mörg marka liðsins komu eftir vel útfærðar aukaspyrnur og hornspyrnur frá honum. Sjálfur skoraði hann nokkur 3 úr vítaspyrnum og amk eitt mark beint úr aukaspyrnu. Sigurvin varð fjórði markahæsti leikmaður 2.deildar. Sigurvin var einnig kjörinn leikmaður ársins af þjálfurum og fyrirliðum liðanna 2.deild í kjöri Fótbolta.net eftir mótið.

Það fer ekki mikið fyrir Venna, eins og hann er kallaður, en honum fylgir hvorki hroki né stærilæti. Hann er auðmjúkur og alltaf tilbúinn til að leggja sig 100 % fram enda hörkuduglegur í leikjum sem og á æfingum.

Venni

Venni2

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.