Aðalstjórn

Endurnýjun á Fyrirmyndafélagi ÍSÍ

Íþróttafélagið Grótta

3.1.2010

Íþróttafélagið Grótta fékk gæðaverðlaunin Fyrirmyndafélag ÍSÍ fyrst allra félaga fyrir allar sínar deildir 21.apríl 2005. Núna var svo komið að endunýja þurfti gæðaverðlaunin. Gerð var úttekt á félaginu og kom það ekki á óvart að Gróttu fékk endurnýjun á þessum gæðaverðlaunum frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Verðlaunin fengu hver deild félagsins auk aðalstjórnar á kjöri á Íþróttamanni Gróttu þriðjudaginn 29.desember sl. Það voru formenn hverrar deildar auk Guðrúnar Kaldal varaformanns Gróttu sem tóku á móti verðlaununum.

Íþróttafélagið Grótta getur því áfram stolt talið sig Fyrirmyndafélag ÍSÍ. Skila þurfi ítarlegri greinagerð um skipulag félagsins, umgjörð þjálfunar og keppni, fjármálastjórn, þjálfaramenntun, félagsstarf, foreldrastarf, fræðslu- og forvarnarstarf, jafnréttismála og fleira.

Fyrirmyndafélag ÍSÍ - allar deildir2

Ólafur Rafnsson formaður ÍSÍ afhenti forsvarsmönnum deilda Gróttu viðurkenninguna. Friðrika Harðardóttir formaður fimleikadeildar, Guðrún Kaldal varaformaður Gróttu, Eiríkur Elís Þorláksson formaður handknattleiksdeildar og Hilmar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar. 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.