Aðalstjórn
Siðareglur Gróttu
Íþróttafélagið Grótta
Íþróttafélagið Grótta hefur gefið út siðareglur fyrir alla þá sem umgangast félagið. Markmið félagsins með siðareglum er að veita félagsmönnum sínum almennar leiðbeiningar í leik og starfi. Þær eru hluti af þeim anda sem á að vera ríkjandi í félaginu og þurfa að njóta almenns stuðnings meðal félagsmanna. Siðareglurnar skulu vera hvetjandi og leiðbeinandi í senn og skal kynna öllum félagsmönnum. Reglurnar eru ekki eingöngu leiðbeinandi heldur geta þær haft refsiákvæði af ýmsum gerðum. Siðareglunum verður dreift inn í hvert hús á Seltjarnarnesi á næstu dögum. Það er hægt að skoða siðareglurnar með því að smella hér.

