Aðalstjórn
Skyndhjálparnámskeið hjá Gróttu á miðvikudaginn
Íþróttafélagið Grótta
Á miðvikudagskvöld bauð ÍTS og Íþróttamiðstöð þjálfurum Gróttu upp á skyndihjálparnámskeið. Mjög góð mæting var hjá þjálfurum félagsins enda gera þeir sig grein fyrir mikilvægi málsins og mikilvægi þess að kunna réttu handtökin þegar illa fer. Það var Oddur Eiríksson sjúkraflutningamaður sem sá um kennsluna en hann hefur í mörg ár séð um skyndihjálp fyrir starfsmenn íþróttahússins og sundlaugarinnar. Um var að ræða sérhæft námskeið fyrir óhöpp og slys sem upp koma í helstu íþróttagreinum og almennu starfi með börnum og unglingum.
Margir þjálfaranna höfðu áður farið á sams konar námskeið en eins og þjálfarnir sögðu, þá er mikilvægt að fá upprifjun reglulega.



