Aðalstjórn

Tómstundastyrkir - skil á umsóknum

Íþróttafélagið Grótta

11.1.2010

Fyrri hluti Tómstundastyrkja Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2010 verða greiddir út í febrúar. Skila á umsóknum um tómstundastyrki 2010 fyrir 31. janúar 2010 til bæjarskrifstofu. Þeir iðkendur sem stunda sína íþrótt hjá Gróttu þurfa ekki að fá undirskrift þjálfara. Grótta sendir bæjarskrifstofunni lista með þeim æfa hjá félaginu og hafa greitt iðkendagjöld. Nafnalistinn liggur þess vegna hjá bænum.

Vakin er athygli á eftirfarandi:

  1. Tómstundastyrkur er kr. 25.000,- á ári.
  2. Sækja þarf um tómstundastyrk einu sinni á ári, nema að barn hafi skipt um félag eða íþrótta-,lista- eða tómstundaiðkun.
  3. Fyrri helmingur tómstundastyrkja er greiddur í febrúar og seinni helmingur greiddur í júní.
    Sækja þarf um styrkinn í næsta mánuði á undan útborgunarmánuði. Ef óskað er eftir eingreiðslu kr. 25.000.- er hún greidd í júní eða lok ársins. Styrkurinn getur aldrei orðið hærri en æfingagjaldið/þátttökugjaldið er.
  4. Námskeiðs- eða æfingatímabilið er almanaksárið. Greiðslan í febrúar er miðuð við ástundun og greiðslu þátttökugjalda í ágúst - desember næsta árs á undan.
  5. Allir þeir sem eru  6-18 ára á almanaksárinu og uppfylla reglurnar  eru styrkhæfir. 
  6. Ekki er hægt að flytja ástundunarréttindi og greiðslur á milli ára, að undanskildu sem fram kemur í lið 4.

Reglur og skilyrði um greiðslur tómstundastyrkja Seltjarnarnesbæjar

Umsóknareyðublað um tómstundastyrki 

 

SELTJARNARNESBÆR

Íþrótta- og tómstundaráð

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.