Aðalstjórn
Aðalfundir allra deilda hjá Gróttu
Íþróttafélagið Grótta
Aðalfundir allra deilda hjá Gróttu verða haldnir miðvikudaginn 10.mars nk. Aðalfundur knattspyrnudeildar hefst kl. 18:00, aðalfundur handknattleiksdeildar hefst kl. 18:20, aðalfundur fimleikadeildar kl. 18:40 og loks aðalfundur aðalstjórnar kl. 19:00. Fundirnir fara fram í Hátíðarsal Gróttu og efni fundanna eru hefðbundin aðalfundarstörf. Auk þess eru lagabreytingar hjá handknattleiksdeild en þær er hægt að kynna sér á skrifstofu Gróttu fram að aðalfundi.
Hvetjum áhugasama um starf Gróttu til að mæta 10.mars.
Andri Sigfússon
Íþróttafulltrúi

