Aðalstjórn

Gróttuvitinn fer vel af stað - Yfir 70 skráningar

Íþróttafélagið Grótta

26.5.2010

Gróttuvitinn, stuðningsmannafélag meistaraflokka Gróttu, hefur heldur betur farið vel af stað. Tilgangur með stofnuninni er að renna styrkari stoðum undir meistaraflokka félagsins í handknattleik og knattspyrnu. Þeir sem skrá sig sem Gróttuvitar fá Gróttuvitakort sem gildir sem árskort á alla deildarleiki í meistaraflokki karla og kvenna í handbolta og fótbolta. Auk þess fá Grótuvitar önnur fríðindi.

Hægt er að velja um tvenns konar aðild, Gullvitann eða Silfurvitann.

Gullvitinn - mánaðarlegar greiðslur er 2.000 kr

Innifalið er:

  • Kort fyrir 2 á alla heimaleiki í meistaraflokki karla og kvenna í handknattleik og knattspyrnu í deildarkeppni.
  • Orkulykill með merki félagins og tilheyrandi afslætti hjá Shell og Orkunni
  • Kaffi-veitingar í leikhléi á heimaleikjum
  • Boð á ýmsar uppákomur tengdar félaginu, t.d. Kick off í upphafi leiktímabils og stuðningsmannaskemmtanir
  • Aðgangur að golfmóti stuðningsmannaklúbbsins

_____________________________________________________________

Silfurvitinn - mánaðarlegar greiðslur er 1.500 kr

Innifalið er:

  • Kort fyrir 1 á alla heimaleiki í meistaraflokki karla og kvenna í handknattleik og knattspyrnu í deildarkeppni.
  • Orkulykill með merki félagins og tilheyrandi afslætti hjá Shell og Orkunni
  • Kaffi-veitingar í leikhléi á heimaleikjum
  • Boð á ýmsar uppákomur tengdar félaginu, t.d. Kick off í upphafi leiktímabils og stuðningsmannaskemmtanir
  • Aðgangur að golfmóti stuðningsmannaklúbbsins

_____________________________________________________________

Nú þegar hafa yfir 70 manns skráð sig sem Gróttuvitar og fer ört fjölgandi. Hægt er að skrá sig með því að fylla út eyðublað og skila því á skrifstofu Gróttu eða á netfangið andri@grottasport.is.

Eyðublað - Gróttuvitinn

Mynd af Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarstjóra Seltjarnarness, þegar hún tók á móti fyrsta Gullvitakortinu úr höndum Gunnars Þorbergs Gylfasonar formanns Gróttuvitans og Hilmars Sigurðssonar formanns knattspyrnudeildar.

Ásgerður Halldórs og Gróttuvitinn

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.