Aðalstjórn
Miðasala á Þorrablótið gengur vel
Íþróttafélagið Grótta
Stemmningin er greinilega góð fyrir Þorrablótið og stefnir í flott kvöld. Gleðin verður allsráðandi og m.a. mun Björk Jakobs leikona vera með uppistand af bestu gerð. Þeir sem eiga enn eftir að tryggja sér miða verða að hafa snör handtök og hafa strax samband við skrifstofu Gróttu þar sem eingöngu 40 miðar eru eftir.
Miðaverð aðeins 6500 kr en miðasala fer fram á skrifstofu Gróttu, s. 561-1133 eða grotta@grottasport.is.
- Húsið opnar kl. 19:00, blússandi djass og stuð fram að borðhaldi sem hefst kl. 20:00
- Þorramatur og aðrir ljúfir réttir frá snillingunum í Veislunni og Kjarnafæði
- Lífskúnstnerinn Kári Húnfjörð mun stýra veisluhöldunum af sinni alkunnu gleði
- Hún óborganlega Björk Jakobs flytur gamanmál og aðrir listamenn munu láta ljós sitt skína
- Þorraþrællinn mætir á staðinn og æsir gesti upp í keppni milli borða
- DJ Kiddi Bigfoot mun svo halda uppi stuðina fram á nótt


