Hlutverk Gróttu

hlutverk og markmið félagsins

12.9.2007

Almenn markmið Gróttu:

  • Efla barna- og unglingastarf enn frekar, með það að leiðarljósi að íþróttaiðkun skuli vera þroskandi bæði líkamlega, sálrænt og félagslega fyrir alla
  • Halda úti núverandi eineltisstefnu, milli stofnanna Seltjarnarnessbæjar og Gróttu.
  • Halda úti núverandi vímuvarnarstefnu,  og fræða iðkendur reglulega (1 sinni á ári)
  • Að ungt fólk eigi fulltrúa í stjórnum félagsins

 

 

Íþróttaleg markmið Gróttu

 

·        Að halda úti öllum yngri flokkum hjá báðum kynjum. 

·        Að allir þjálfarar hafi menntun til að sinna þjálfun.

·        Að halda fjölda þátttakenda yngri flokka þannig að hlutfall þeirra sé um 85% af grunnskólanemendum

·        Að lögð sé fram kennslu – og æfingaskrá fyrir alla flokka

·        Að gefa öllum jöfn tækifæri til að stunda íþróttir.

·        Að skila ungum leikmönnum upp í meistaraflokka félagsins.

·        Að unnið verði eftir stefnu ÍSÍ í barna – og unglingaíþróttum

 

      Félagsleg markmið Gróttu.:

·        Að auka félagslegan þátt æfinga yngri flokka þannig að 4 sinni á ári verði einhvers konar afþreying utan hefðbundinna æfinga fyrir alla flokka.

·        Efla félgsvitund barna og unglinga, þannig að þeim sé ljóst að þeir leiki undir merki Gróttu og beri virðingu fyrir félaginu.

·        Að stöðva brottfall úr félaginu þegar kemur að unglingsaldri

·        Gott upplýsingastreymi milli félagsins og foreldra.

·        Fræða iðkendur um gildi hollra lifnaðarhátta og mikilvægi hreyfingar.

·        Að starfið miðist við þarfir hópsins og efli samkennd iðkenda.

·        Að auka samvinnu og fræða iðkendur.

·        Að auka virðingu fyrir reglum.

·        Að auka þátt foreldra í öllu starfi.

·        Að lögð verði áhersla á mætingu og virðingu fyrir reglum þjálfara og að börnum verði umbunað fyrir góða mætingu og hegðun í starfi



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fimleikamynd1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.