Nýjustu úrslit

Grótta - ÍH/HV: 4 - 1

Knattspyrna - Mfl. karla

24.8.2009

Frábært veður var á Seltjarnarnesi þegar ÍH/HV kom í heimsókn. Fyrir leikinn var ÍH/HV 8. sæti en Grótta á toppnum. Leikurinn fór fjörlega af stað og fyrsta markið kom strax á 3. mínútu. Þá tók Sigurvin Ólafsson hornspyrnu á nærstöng sem Pétur Már náði að framlengja yfir á fjærstöng og þar var mættur Brynjólfur Bjarnason til að stanga boltann inn af stuttu færi.

Áhorfendur þurftu ekki að bíða lengi eftir öðru marki Gróttu en það koma á 7 mín. Aftur komið markið eftir hornspyrnu sem Sigurvin tók, hann sendi boltann inn í miðjan teiginn og þar stökk fyririliði Gróttu, Ásgrímur Sigurðsson, hæst og skallaði boltann í nærhornið.

Meira markvert gerðist nú ekki í fyrri hálfleik þar sem Grótta stjórnaði leiknum.

Í byrjun seinni hálfleiks átti Viggó Kristjánsson góða sendingu inn fyrir á Garðar Guðnason sem var kominn einn á móti markmanni ÍH/HV en náði ekki að nýta sér það.

En á 73 mín.átti Viggó Kristjánsson aftur frábæra sendingu inn fyrir og aftur var Garðar Guðnason kominn í dauðafæri og þetta skipti náði hann að lyfta boltanum yfir Hannes Rúnar Hannesson markmann ÍH/HV sem kom engum vörnum við. Vel að verki staðið.

Svo aðeins tveimur mínútum síðar var Sigurvin Ólafsson með boltann á hægri kanti og skaut föstu skoti á fjærhornið yfir Hannes Rúnar í marki ÍH/HV. Reyndar vill greinarhöfundur meina að þetta hafi verið svokölluð skonding (sending sem varð að skoti ? a la Ronadinho móti Englandi á HM 2002). En nóg um það staðan orðin 4-0 og öruggur sigur Gróttu í höfn.

Í uppbótartíma náði ÍH/HV að klóra í bakkann þegar þeir fengu dæmda vítarspyrnu þegar brotið var á Halli Ásgeirssyni, hann fór sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi fram hjá Kristjáni Finnbogasyni markmanni Gróttu.

Leikurinn endaði með því 4-1 sigri Gróttumanna sem með þessum úrslitum styrktu stöðu sína á toppi 2. deildar.

Þess má geta að unglingalandsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson var að spila sinn fyrsta meistaraflokks leik í byrjunarliði og lagði upp fallegt mark. Enn frekar kom Sigurður Guðmundsson leikmaður 2. flokks inná í sínum fyrsta leik fyrir meistaraflokk Gróttu þegar um 10. mínútur voru eftir.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.