Nýjustu úrslit

Fjöl/Aft - Grótta: 20 - 26

Handbolti - Mfl. kvenna

26.10.2009

Meistaraflokkur kvenna lék sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í dag, sunnudag, en liðið leikur sem kunnugt er í 2. deild í ár á meðan leikmenn liðsins eru undirbúnir undir þátttöku í N1 deild kvenna að ári. Fyrsti leikur liðsins var á útivelli gegn sameinuðu liði Fjölnis/Aftureldingar. Leikurinn var jafn og spennandi framan af fyrri hálfleik en nokkur haustbragur var á leik beggja liða á upphafsmínutum leiksins.

Liðin skiptust á að skora en í stöðunni 9-8 fyrir heimaliðinu og þegar fimm mínútur voru eftir af hálfleiknum tóku Seltirningar leikhlé.

Gróttustúlkur breyttu um varnarafbrigði sem skilaði þeim nokkrum góðum boltum í vörninni og unnu þær lokakaflann 5-1. Staðan í hálfleik var því 10-13 fyrir gestina af Seltjarnarnesi.

Seinni hálfleikur hófst af miklum krafti hjá okkar stúlkum og þegar 10 mínútur voru búnar af síðari hálfleik var liðið komið með gott átta marka forskot. Á þessum kafla skoruðu Gróttutúlkur mikið magn af hraðaupphlaupsmörkum og var hornamaðurinn Bjarney Bjarnadóttir fremst í flokki, oft eftir góðar sendingar frá Sóleyju Halldórsdóttur markverði liðsins. Grótta hélt þessu forskoti út hálfleikinn og fagnaði að lokum sex marka sigri, 20-26.

Leikurinn var ágætlega leikinn gegn nokkuð góðu liði Fjölnis/Aftureldingar. Ljóst er að leikur liðsins mun slípast enn meira til með aukinni leikæfingu en næsti leikur liðsins er gegn FH í Kaplakrika næstkomandi sunnudag.

Markaskor:

Bjarney Bjarnadóttir - 6 mörk
Hildur Marín Andrésdóttir - 6 mörk
Tinna Laxdal Gautadóttir - 5 mörk
Sigríður Svala Jónasdóttir - 4 mörk
Ásrún Lilja Birgisdóttir - 2 mörk
Katrín Tómasdóttir - 2 mörk
Dagmar Magnadóttir - 1 mark

Í markinu stóðu Rannveig Smáradóttir og Sóley Halldórsdóttir. Rannveig varði 7 skot og Sóley 13, þar af eitt vítakast.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.