Nýjustu úrslit
FH - Grótta: 32 - 38
Handbolti - Mfl. karla
Á fimmtudagskvöld fóru Gróttumenn í Kaplakrika og öttu þar kappi við heimamenn í FH. Bæði lið höfðu tapað naumlega seinasta leik sínum, Gróttumenn gegn Akureyri og FH-ingar gegn Haukum. Liðin voru því staðráðin að næla sér í 2 mikilvæg stig í baráttunni. Gróttumenn byrjuðu leikinn mjög vel og höfðu yfirhöndina mestan hlut fyrri hálfleiks. Undir lok hálfleiksins náði FH-ingar að komast yfir en með mikilli baráttu og hröðum leik jöfnuðu Gróttumenn fyrir hlé, 16-16.
Síðari hálfleikur var hreint út sagt frábær hjá Gróttuliðinu. Vörnin var sterk og ódýr mörk úr hraðaupphlaupum gerðu það að verkum að Gróttumenn náðu góðu forskoti. Agaður sóknarleikur þar sem allir leikmenn lögðu sitt af mörkum, skilaði glæsilegum 6 marka sigri þegar leiktímanum lauk, 38-32.
Segja má að okkar menn hafi fellt FH-ingana á eigin bragði en Gróttuliðið keyrði upp hraðann í leiknum. Gróttuliðið svaraði heldur betur gagnrýnni umfjöllun Fréttablaðsins með frábærri frammistöðu inn á vellinum. Hröð upphlaup og hraðar miðjur voru aðalsmerki Gróttuliðsins gegn FH-ingum og má fullyrða að Gróttuliðið hafi sprengt FH-inga í seinni hálfleik.
Þó að liðið hafi fengið á sig 32 mörk í leiknum var vörnin góð. Öll varnarafbrigði Gróttunnar slógu FH-inga út af laginu, sama hvort Gróttan spilaði 3-2-1 vörn, 5+1 vörn eða 6-0 vörn.
Mörk Gróttu skoruðu:
Finnur Ingi Stefánsson - 8 mörk
Anton Rúnarsson - 7 mörk
Jón Karl Björnsson - 7/4 mörk
Atli Rúnar Steinþórsson - 6 mörk
Hjalti Þór Pálmason - 4 mörk
Halldór Ingólfsson - 3 mörk
Arnar Freyr Theodórsson - 2 mörk
Júlíus Þórir Stefánsson - 1 mark
Í markinu varði Gísli Guðmundsson 11 skot og Einar Rafn Ingimarsson 1 skot
Stutt er í næsta leik liðsins en það er gegn Stjörnunni í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikurinn fer fram í Mýrinni næstkomandi sunnudag, 15.nóv og hefst leikurinn kl. 19:30. Við hvetjum alla til að fjölmenna og hjálpa drengjunum að komast áfram í bikarnum.

