Nýjustu úrslit

Haukar - Grótta: 31-24

Handbolti - Mfl. karla

23.11.2009

Sunnudaginn síđastliđinn fóru Gróttustrákar í heimsókn í Hafnarfjörđinn, nánar tiltekiđ á Ásvelli og öttu kappi viđ Hauka. Leikurinn var spennandi framan af en ţegar skammt var til leiksloka sigldu Haukastrákar ţó fram úr í lokin. Fyrri hálfleikur fór vel á stađ og Gróttustrákar komust í 2-1 og leikurinn jafn framan af hálfleiknum og mikil barátta í leikmönnum. Haukamenn náđu mest 4 marka forystu en stađan í hálfleik var 13-11 fyrir Haukum.

Í seinni hálfleik komu Gróttustrákar gríđarlega ákveđnir til leiks og jöfnuđu leikinn og komust yfir í stöđunni 19-20. En ţá kom vendipunktur leiksins ţegar ađ Ćgir Hrafn meiddist á hné og fór af velli, sem og Hjalti Pálma en hann fékk sína ţriđju tvćr mínutur og ţar međ rautt. Viđ ţetta hrundi leikur liđsins algjörlega og Haukamenn snéru blađinu viđ og áđur en Gróttumenn gátu gert einhvađ í hlutunum var stađan orđin 27-20 fyrir Haukum. Lokatölur urđu svo 31-24, öruggur Haukasigur en soldiđ stór miđađ viđ gang leiksins enda hefđu Gróttumenn hćglega getađ fengiđ meir út úr ţessum leik.

Gamli Haukamađurinn Jón Karl skorađi alls 8 mörk gegn sínum gömlu félögum og lék markmenn Haukaliđsins oft grátt á vítalínunni.

Markaskor:

Jón Karl - 8
Anton - 6
Ćgir - 3
Atli - 2
Finnur - 2
Hjalti - 2
Halldór - 1

Í markinu stóđ Gísli vaktina ágćtlega og varđi 14 skot og Einar kom svo inná í lokin og varđi 1 skot.

Nćsti leikur liđsins er gegn Stjörnunni á fimmtudaginn. Leikurinn hefst kl. 19:30. Leikurinn er gríđarlega mikilvćgur ţar sem ţessi tvö liđ verđa í mikilli baráttu í vor. Grillveisla međ hamborgum hefst kl. 18:00 í hátíđarsalnum, ţannig ađ ţađ er um ađ gera ađ taka daginn snemma og gćđa sér á Gróttuhamborgunum.

Gerum heimavöllinn ađ ţeim erfiđasta á landinu!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síđu:



handbolti5
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.