Nýjustu úrslit
Grótta - Fram: 32 - 29
Handbolti - Mfl. karla
Á fimmtudagskvöld mćtti Grótta liđi Fram N1-deildinni. Leikurinn fór fram á Nesinu fyrir framan 550 áhorfendur. Fyrir leikinn hafđi Gróttuliđiđ unniđ 3 leiki af seinustu 4 og ekkert annađ á bođstólnum en ađ bćta ţeim fjórđa viđ. Leikurinn fór hćgt af stađ en fljótlega komst Gróttan í 5-1. Eftir ţví sem leiđ á hálfleikinn náđi Framarar ađ minnka muninn og í hálfleik var jafnt, 15-15.
Gróttumenn skoruđu fyrsta markiđ í síđari hálfleik, 16-15, en Framarar svöruđu međ tveimur mörkum og náđu forystunni. Á 37.mínútu leiksins braut Arnar Birkir Hálfdánarson, leikmađur Fram á Jóni Karli Björnsson; greip í fótinn á Jóni Karli ţegar hann sveif inn úr horninu og uppskar ađ sjálfsögđu rautt spjald. Ţetta stórhćttulega brot ber heitiđ "júgóslavneska bragđiđ" og getur stórslasađ mótherjann. Gróttumenn gengu á lagiđ, skoruđu ţrjú mörk í röđ og lögđu grunninn ađ ágćtum sigri. Framarar sýndu reyndar ágćtan karakter, gáfust aldrei upp og ungu leikmennirnir sýndu á köflum ágćt tilţrif, en ţeir náđu ţó aldrei ađ ógna forystu heimamanna og Grótta stóđ ađ lokum uppi sem sigurvegari, 32-29.
Leikurinn var aldrei mikiđ fyrir augađ en stigin tvö GRÍĐARLEGA mikilvćg í baráttunni. Nú er Gróttuliđiđ komiđ međ 8 stig og situr í 5.sćtinu áfram, stigi á eftir FH-ingum sem eru í 4.sćtinu.
Nćsti leikur liđsins er gegn Víkingum í 8-liđa úrslitum Eimskipsbikarsins á mánudaginn. Leikurinn hefst kl. 19:30 og fer fram í Víkinni.
Stađan í N1-deildinni lítur svona út eftir leiki fimmtudagsins.
| Nr. | Félag | Leik | U | J | T | Mörk | Nett | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. | Haukar | 7 | 5 | 2 | 0 | 179:158 | 21 | 12 |
| 2. | Valur | 8 | 5 | 1 | 2 | 203:187 | 16 | 11 |
| 3. | Akureyri | 8 | 5 | 1 | 2 | 200:191 | 9 | 11 |
| 4. | FH | 8 | 4 | 1 | 3 | 227:218 | 9 | 9 |
| 5. | Grótta | 8 | 4 | 0 | 4 | 207:205 | 2 | 8 |
| 6. | HK | 7 | 3 | 1 | 3 | 176:179 | -3 | 7 |
| 7. | Stjarnan | 8 | 1 | 0 | 7 | 172:205 | -33 | 2 |
| 8. | Fram | 8 | 1 | 0 | 7 | 201:222 | -21 | 2 |

