Nýjustu úrslit
Grótta - Fjöl/Aft: 33 - 15
Handbolti - Mfl. kvenna
Kvennalið Gróttu hefur hafið nýtt ár af miklum krafti. Liðið hefur leikið tvo leiki í deildinni gegn Þrótti og ÍBV. Leikurinn gegn Þrótti vannst með 16 marka mun 30-14 og Grótta bar sigurorð af ÍBV á heimavelli fyrir tíu dögum síðan með þremur mörkum 34-31.
Eyjastúlkur voru fyrir leikinn með næst fæst töpuð stig í deildinni á eftir Nesstúlkum og því var sigurinn mjög mikilvægur. Liðið lék einnig í átta liða úrslitum Eimskips-bikarsins gegn stórliði Fram.
Leikurinn var einstefna allan tímann og unnu Framstúlkur leikinn örugglega. Það er þó ljóst að leikurinn var mikilvægur ungu og efnilegu leikmönnum liðsins sem munu bera uppi meistaraflokk félagsins næstu árin.
Grótta lék gegn sameinuðu liði Fjölnis/Aftureldingar í kvöld á heimavelli á Seltjarnarnesinu. Leikurinn var í járnum framan af þó að Gróttustúlkur hafi leitt lengst af fyrri hálfleiks. Helstu vandræði liðsins voru varnarlega en þær áttu í miklum vandræðum með leikreynda leikmenn gestanna. Staðan í hálfleik var 13-10 Gróttu í vil.
Í síðari hálfleik var eins og gerbreytt lið kæmi til leiks. Vörnin var eins og múr og Grótta skoraði hvert markið á fætur öðru úr hraðaupphlaupi. Að lokum fór svo að Grótta vann síðari hálfleikinn með fimmtán mörkum, 20-5 og leikinn þarm eð 33-15. Góður sigur Gróttustúlkna sem stefna hraðbyri að sigri í deildinni.
Mörk Gróttu:
Bjarney Bjarnadóttir 10
Hildur Marín Andrésdóttir 6
Ásrún Lilja Birgisdóttir 4
Katrín Viðarsdóttir 4
Helga Rún Hlöðversdóttir 3
Katrín Tómasdóttir 2
Tinna Laxdal Gautadóttir 1
Rebekka Guðmundsdóttir 1
Sigríður Svala Jónasdóttir 1
Steinunn Jóhannesdóttir 1
Hlíf Reynisdóttir varði 18 skot í markinu þar af 3 víti.
Næsti leikur liðsins er strax á föstudag gegn FH. Leikurinn fer fram á Seltjarnarnesi og hefst kl. 19.20. FH er sem stendur í öðru sæti deildarinnar, nokkrum stigum á eftir Gróttu. Leikurinn er því gríðarlega mikilvægur fyrir okkar stúlkur og nauðsynlegt að sigur vinnist.

