Nýjustu úrslit
Grótta - Valur: 26 - 27
Handbolti - Mfl. karla
Grótta lék á fimmtudagskvöld gegn Völsurum í N1-deildinni í handbolta. Ţađ var greinilegt á liđinum ađ ţau voru ađ spila sinn fyrsta alvöru leik frá ţví um miđjan desember ţví ekki var markaskoriđ hátt til ađ byrja međ. Eftir 8 mínútur ţá hafđi Gróttu ekki skorađ mark og Valsarar 2-0 yfir. Eftir ţví sem á leiđ hálfleikinn náđu okkar strákar forystu og hafđi liđiđ gulliđ tćkifćri til ađ vera einu marki yfir í hálfleik en fyrrum Grottumađurinn Hlynur Morthens sá viđ Antoni Rúnarssyni á vítapunktinum. 13-13 í hálfleik.
Í síđari hálfleik voru ţađ Valsmenn sem voru íviđ sterkari ađilinn. Ţeir komust yfir fljótlega og juku muninn eftir ţví sem leiđ á hálfleikinn og komust mest í 5 marka forystu, 23-18. Ţá kom góđur kafli hjá heimamönnum og skyndilega stađan orđin 23-22 Val í vil. Seinustu mínútur leiksins voru spennuţrungnar og ţegar 90 sekúndur voru eftir af leiknum fóru Seltirningar í sókn og stađan 26-26. Á ţessum tíma voru Gróttumenn einum fćrri eftir ađ Hjalta Ţór Pálmasyni hafđi veriđ rekinn út af fyrir vćgast sagt litlar sakir.
Valsmenn brugđu á ţađ ráđ ađ mćta Halldóri Ingólfssyni, (42 ára á ţessu ári) framarlega, eiginlega taka hann úr umferđ. Sóknin varđ viđ ţađ ráđleysisleg en eftir leikfléttu komst Halldór Ingólfs í ágćtisfćri í horninu en Hlynur Morthens var Gróttumönnum erfiđur í leiknum varđi slaka vippu Halldórs. Valsmenn fóru í sókn og ţegar 6 sekúndur voru eftir af leiknum fengu Valsmenn vítakast eftir langa sókn. Úr vítakastinu skoruđu gestirnir og tryggđu sér sigur 27-26. Grátlegt.
Markaskor:
Finnur Ingi Stefánsson- 10
Hjalti Ţór Pálmason - 4
Anton Rúnarsson - 3
Atli Rúnar Steinţórsson - 3
Heiđar Ţór Ađalsteinsson 2
Jón Karl Björnsson - 2
Halldór Ingólfsson - 1
Matthías Árni Ingimarsson - 1
Í markinu varđi Magnús Sigmundsson 11 skot
Nćsti leikur liđsins er gegn Akureyri á mánudaginn fyrir norđan.

