Nýjustu úrslit
Grótta - HK: 33 - 20
Handbolti - Mfl. karla
Meistaraflokkur kvenna hefur leikið tvo leiki í 2. deild kvenna frá því að síðasti pistill var skrifaður. Sunnudaginn 7. febrúar lék liðið gegn botnliði deildarinnar Haukum á Ásvöllum. Fyrir leikinn bjuggust ef til vill flestir við auðveldum leik en í liði Hauka voru reynsluboltar á borð við Hörpu Melsteð, Ingu Fríðu Tryggvadóttur og markvörðinn knáa Vigdísi Sigurðardóttur. Þessir leikmenn eiga mörg hundruð meistaraflokksleiki á bakinu. Það var því ljóst að von var á hörkuleik sem kom á daginn. Gróttustúlkur leiddu þó lengst af í leiknum og voru þremur mörkum yfir í hálfleik 13-9. Þökk sé frábærum leik Hlífar í markinu og góðum leik ungu hornamannanna Rebekku Guðmundsdóttur og Helgu Rún Hlöðversdóttur vannst nokkuð þægilegur átta marka sigur 28-20. Leikurinn var í heild sinni nokkuð vel leikinn af hálfu Gróttustúlkna.
Síðastliðið föstudagskvöld komu svo leikmenn HK í heimsókn á Seltjarnarnesið. Liðin höfðu mæst í fyrri umferðinni um miðjan nóvember og bar Grótta sigur úr bítum í þeim leik 32-17.
Heimastúlkur voru nokkuð lengi í gang gegn HK og var jafnt á öllum tölum fyrstu 15 mínútur leiksins. Slakur varnarleikur og mistök í sóknarleiknum urðu þess valdandi að leikmenn HK náðu að halda í við Gróttustúlkur. Um miðjan hálfleikinn small vörnin saman og sóknarleikurinn varð betri en það skilaði liðinu sjö marka forskoti í hálfleik 19-12. Heimastúlkur bættu svo hægt og bítandi við forskotið og uppskáru 13 marka sigur, 33-20.
Markaskorið dreifðist eftirfarandi:
Hildur Marín Andrésdóttir - 8 mörk
Katrín Viðarsdóttir - 5 mörk
Helga Rún Hlöðversdóttir - 4 mörk
Tinna Laxdal Gautadóttir - 4 mörk
Sigríður Svala Jónasdóttir - 3 mörk
Agnes Guðmundsdóttir - 3 mörk
Sandra Björk Halldórsdóttir - 2 mörk
Auður Ólafsdóttir - 2 mörk
Rebekka Guðmundsdóttir - 1 mark
Katrín Tómasdóttir - 1 mark
Næsti leikur Gróttu er gegn ÍBV í Eyjum næstkomandi laugardag. Liðin mættust síðast á heimavelli Gróttu fyrir u.þ.b. mánuði og þá sigruðu Gróttustúlkur með þremur mörkum. Þá má því búast við hörkuleik í Eyjum um næstu helgi.

