Nýjustu úrslit

Valur - Grótta: 20 - 19

Handbolti - Mfl. karla

16.2.2010

Niðurstaða gærkvöldsins var með allra sárasta móti. Eins marks tap, og það í þriðja skiptið í vetur gegn Valsmönnum. Í þetta sinn var niðurstaðan sárari, þ.e. að með henni var endir bundinn á frekari þáttöku Gróttuliðsins í Eimskipsbikarnum.

Ekki er hægt að segja að margt hafi komið á óvart í leiknum og líklegt að mörgum dyggum stuðningsmanninum hafi fundist hann vera að horfa á endurtekið efni.  Eins og aðrir leikir þessara liða í vetur var leikurinn mjög kaflaskiptur framan af en síðan allt hnífjafnt síðustu mínúturnar.  Sem fyrr frábær skemmtun fyrir alla unnendur handbolta en niðurstaðan jafn sár fyrir okkur Gróttara.  Fullreynt er með að hægt sé að venjast niðurstöðu sem þessari.

Það virðist hins vegar vera orðið einsýnt að rimmur þessara tveggja liða verði ekki útkljáðar fyrr en á síðustu mínútu.  Jákvætt er til þess að hugsa að liðin eiga eftir að mætast einu sinni til viðbótar í vetur.  Þar munu okkar menn fá enn eitt tækifærið til þess að snúa taflinu sér í vil áður en keppni líkur á þessu tímabili.

Hlynur Morthens og Sigurður Eggertsson vor bestu menn Valsmanna en okkar megin voru það Magnús markmaður og Anton sem stóðu upp úr.

Magnús Sigmundsson meiddist á kálfa undir lok leiksins í gær og óvíst er með þáttöku hans í leiknum við FH-inga á fimmtudaginn kemur.

Sjá nánari umfjöllun um leikinn í fjölmiðlum :

http://www.mbl.is/mm/sport/handbolti/2010/02/14/valsmenn_i_bikarurslitin/

http://www.mbl.is/mm/sport/handbolti/2010/02/14/hlynur_skemmtilegra_med_thessum_haetti/

http://www.visir.is/article/20100214/IDROTTIR02/469048323/-1

http://www.visir.is/article/20100214/IDROTTIR02/180213470/-1



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti6
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.