Nýjustu úrslit
Haukar - Grótta: 22 - 21
Handbolti - Mfl. karla
Grótta fór í gær í heimsókn til heiðursmannanna að Ásvöllum í Hafnarfirði. Haukar eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar og því ljóst að það yrði við rammann reipinn að draga. Grótta var að spila sinn fyrsta leik undir stjórn Geirs Sveinssonar sem tók við stjórnartaumunum liðsins fyrr í vikunni.
Haukar byrjuðu betur og höfðu frumkvæði allan fyrri hálfleikinn. Gróttumenn gerðu mikið af tæknilegum mistökum í sókninni og mörg marka Hauka komu eftir hraðaupphlaup. Mestur varð munurinn sjö mörk. Gísli Guðmundsson í marki Gróttu hélt lífi í leiknum með frábærri markvörslu á köflum en hann varði mörg skot úr dauðafærum. Það kom þó ekki í veg fyrir að Haukar leiddu í hálfleik 13-8.
Í síðari hálfleik komu Gróttumenn mjög grimmir til leiks og söxuðu hratt á forskot Hafnfirðinga. Um miðjan hálfleikinn náði Gróttumenn að komast yfir og leiddi 17-15 þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Haukar náðu þó vopnum sínum á ný, dyggilega studdir af arfaslökum dómurum leiksins, og komust yfir 20-19. Liðin skiptust á að ná forystu eftir það. Grótta komst yfir 23-22 og náði boltanum þegar um 90 sekúndur voru eftir af leiknum. Haukar náðu þá boltanum og jöfnuðu metin. Gróttumenn fóru í sókn og fengu víti þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum. Birkir Ívar Guðmundsson markvörður Hauka varði vítið og Haukar skoruðu sigurmarkið þegar átta sekúndur voru eftir af leiknum. Lokatölur 24-23.
Niðurstaðan var því tap fyrir besta liði landsins. Úrslitin eru mikil vonbrigði í ljósi þess að Grótta leiddi leikinn og var með boltann þegar um mínúta var eftir. Hins vegar verður að hrósa liðinu fyrir frábæran leik eftir að hafa lent sjö mörkum undir gegn Haukum. Sú barátta sem liðið sýndi var til háborinnar fyrirmyndar og á eftir að, ef áframhald verður á, fleyta liðinu yfir erfiða hjalla það sem eftir lifir vetrar.
Viggó Kristjánsson átti frábæran leik fyrir Gróttu og lék besta markvörð deildarinnar oft grátt. Þá var fyrirliðinn Atli Steinþórsson öflugur á línunni. Gísli markvörður varði oft frábærlega. Matthías var á við þrjá í vörninni og Hjalti traustur að vanda í vörn og sókn. Aðrir stóðu sig einnig vel.
Markaskorarar Gróttu í leiknum:
Atli Rúnar Steinþórsson 6/1, Viggó Kristjánsson 5, Hjalti Þór Pálmason 4, Jón Karl Björnsson 3/1, Anton Rúnarsson 2, Arnar Freyr Theodórsson 1, Matthías Árni Ingimarsson 1, Ægir Hrafn Jónsson 1.
Fjölmargir stuðningsmenn Gróttu lögðu leið sína til Grindavíkur að horfa á leikinn og studdu dyggilega við bakið á sínum mönnum. Fyrir stuðning við liðið í vetur verður seint fullþakkað.
Dómarar leiksins voru Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólafur Pétursson. Það er von manna að frammistaða þeirra hafi verið undir getu þeirra sem dómarar. Ef ekki, þá eiga þeir að láta af allri dómgæslu nú þegar.

