Nýjustu úrslit

FH - Grótta: 23 - 30

Handbolti - Mfl. karla

28.3.2010

Lið Gróttu lagði leið sína í Hafnarfjörð í gær og atti kappi við FH, stórveldið í Hafnarfirði. Grótta spilaði einn besta leik sinn í vetur og vann glæstan sigur 30-23. Tvö mikilvæg stig í hús en aðalkeppinautar Gróttu; Fram og Stjarnan, unnu einnig sína leiki og keppnin um að halda sér í deildinni því enn í algleymingi.

FH byrjaði kvöldið með ógleymanlegu trompi, slökktu ljósin í höllinni og hlupu inn á keppnisvöllinn að hætti hnefaleikamanna; með hetturnar á kálinu og kýldu út í loftið. Þegar leikurinn byrjaði var eins og hápunkti FH-inga hefði þegar verið náð með lúftkýlingum. Grótta byrjaði leikinn af miklum krafti og eftir 8 mínútna leik var staðan orðin 8-0 fyrir okkur og upphafsatriðið hjá FH leit ekki alveg eins vel út í minningunni. Vörn Gróttu var frábær og Magnús Guðbjörn Sigmundsson varði allt sem á markið kom, þar á meðal fjögur dauðafæri fyrsta kortérið. FH-ingar náðu áttum sínum eftir hina stórkostlegu byrjun Gróttu en okkar menn höfðu engu að síður gott forskot í hálfleik 16-11.

Síðari hálfleikur spilaðist þannig að forskotið var nánast aldrei í hættu. FH komst næst okkur þegar þeir minnkuðu muninn í tvö mörk. Með yfirveguðum leik og hinu margfræga úthaldi náði Grótta að landa þýðingarmiklum sigri þar sem lokatölur voru 30-23.

Grótta sýndi allar sínar bestu hliðar í leiknum. Lóð voru lögð á skálar af öllum leikmönnum sem tóku þátt. Vörn liðsins var feikilega sterk allan tímann með Ægi Hrafn Jónsson og Matthías Ingimarsson fremsta meðal jafningja en þeir félagar vörðu á annan tug skota frá hinu efnilega FH-liði og kveiktu í áhorfendum þegar á þurfti að halda. Matti margfaldaði jafnframt markaskor sitt í vetur. Fyrir aftan þá átti Magnús Guðbjörn annan stórleikinn í röð og varði eins og ljón allan tímann, allt þar til Gísli kom inn á undir lokin og hélt uppteknum hætti. Anton Rúnarsson leiddi sóknarleikinn og skoraði sjö mikilvæg mörk, hvert öðru glæsilegra. Aðrir stóðu sig með prýði og má segja að liðsheildin hafi leitt mikilvægu stigin tvö í jörð.

Markaskor dreifðist með svofelldum hætti: 

Hjalti Þór Pálmason 7/3, 
Anton Rúnarsson 7, 
Jón Karl Björnsson 4, 
Arnar Freyr Theodórsson 4, 
Atli Rúnar Steinþórsson 4, 
Matthías Árni Ingimarsson 3, 
Ægir Hrafn Jónsson 1. 

Dómarar leiksins voru Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson og var frammistaða þeirra óaðfinnanleg og ekki í fyrsta sinn í vetur. Frammistaða þeirra er farin að vekja athygli utan landsteinana, enda er nú ítrekað leitað eftir starfskröfum þeirra í Evópu í keppni þeirra bestu. Skal engan undra miðað við frammistöðu þeirra í þessum leik. Leikurinn í gær var fjarri því auðveldur að dæma þó dómararnir hafi náð að líta út fyrir að svo væri.   

Nú eru þrír leikir eftir í deildinni. Næsti leikur er gegn Stjörnunni á heimavelli nk. miðvikudag. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi leiksins en Stjarnan er einu stigi á eftir okkur í deildinni þegar þrjár umferðir eru eftir. Skyldumæting er á völlinn á miðvikudag. 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.