Nýjustu úrslit
Grótta - Stjarnan: 27 - 26
Handbolti - Mfl. karla
Geipilega þýðingarmikill leikur fór fram á útsvarsparadísinni Seltjarnarnesi í gærkvöldi þegar hið bráðefnilega Stjörnulið Patreks Jóhannessonar mætti til leiks.
Stuðningsmenn Gróttu höfðu góða tilfinningu fyrir leiknum frá því snemma dags. Enda var öll atburðarás til þess fallin að vekja bjartsýni með mönnum: Sigurður Frímann Meyvantsson, besti liðsstjóri heims, var mættur þremur tímum fyrir leik að nostra við búninga, blanda réttu blönduna í brúsana og leggja taktískar línur. Stemmningin stigmagnaðist þegar leikmenn Gróttu gengu í húsið rúmri klukkustund fyrir leik. Á efri hæðum var boðið upp á glóðarsteikta hamborgara og gleðin skein úr hverju andliti.
Í stúkunni tók Gróttufólk öll völd undir dyggri handleiðslu og stjórn Lárusar og Alex sem börðu trommurnar ákveðið og taktfast.
Leikurinn byrjaði ekki ósvipað og síðustu tveir leikir, með stórsókn Seltirninga. Eftir um tíu mínútur var staðan 6-2 fyrir Gróttu. Stjarnan náði þó áttum um stund og jafnaði 6-6. Gróttan hélt ótrauð áfram og náði góðu forskoti sem hélst til loka fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik 15-10.
Síðari hálfleikur var þrunginn, einkum af spennu. Grótta hafði frumkvæðið en liðið varð fyrir miklu áfalli þegar hinn trausti og geðþekki leikmaður, Hjalti Þór Pálmason, fékk að líta rauða spjaldið þegar um 20 mínútur voru eftir eftir eftir minnilegar þrjár brottvísanir, sem allar voru óverðskuldaðar. Þegar um tvær mínútur voru eftir af leiknum náðu Garðbæingar forystu í fyrsta sinn. En enn á ný sýndu leikmenn Gróttu að þeir eru í besta forminu og keyrðu yfir andstæðinginn undir lokin og innbyrtu sigurinn, 27-26. Tvö mikilvæg stig í höfn og Grótta nú þremur stigum á undan helstu keppinautum.
Einn maður stóð upp úr í liði Gróttu í kvöld og það var Jón Karl Björnsson sem skoraði 13 mörk og þar af síðustu tvö mörkin sem tryggðu liðinu hin mikilvægu stig. Halldór Ingólfsson átti einnig góðan leik í sókninni; átti fjölmargar stoðsendingar og fiskaði víti á mikilvægum augnablikum. Matthías sýndi sínar bestu hliðar í vörn og var athyglisverður í sókninni. Markverðirnir, Gísli og Magnús, stóðu sig vel allan leikinn.
Mörk Gróttu settu:
Jón Karl Björnsson 13/5,
Anton Rúnarsson 8,
Atli Rúnar Steinþórsson 3,
Hjalti Þór Pálmason 2,
Arnar Theodórsson 1.
Leikinn dæmdu milliríkjadómararnir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson. Voru þeir frábærir, enda hafa þeir allt til brunns að bera. Öllum má vera ljóst að hér er um að ræða dómarapar sem er komið í hóp topp fimm dómarapara hér á landi.
Næsti leikur Gróttu er á heimavelli gegn Fram, á annan páskadag. Með sigri í þeim leik getur liðið tryggt sér 6. sæti í deildinni á næsta ári, sem yrði frábær árangur hjá liði sem spáð var falli fyrir mót.

