Nýjustu úrslit
KA - Grótta: 1 - 1
Knattspyrna - Mfl. karla
Í gær fór fram leikur Gróttu og KA í annari umferð 1. deildarinnar en leikið var á Þórsvelli vegna lélegs ástands Akureyrarvallar. Gróttuliðið þurfti að leggja lykkju á leið sína þar sem öskuský hamlaði flugumferð í gær og var því lagt af stað með rútu í hádeginu. Skemmst er frá því að segja að leikurinn endaði 1-1 í miklum baráttuleik en Magnús Bernhard Gíslason skoraði mark okkar manna og jafnframt sitt fyrsta mark fyrir félagið.

