Nýjustu úrslit

Grótta - HK: 1 - 2

Knattspyrna - Mfl. karla

25.5.2010

Ţađ var ađ venju frábćrt veđur á Seltjarnarnesi ţegar HK mćtti í heimsókn á Gróttuvöll í gćr. Eins og viđ mátti búast fjölmćttu Seltirningar á völlinn og mikil spenna í loftinu ţegar flautađ var til leiks. Fyrir leikinn voru heimamenn í Gróttu međ 1 stig en gestirnir međ 3. Gunnar Ţorbergur Gylfason (Gussi) var ađ sjálfsögđu á vellinum og skrifađi um leikinn.

Leikurinn fór rólega af stađ og fyrstu 15 mínúturnar einkenndust af mikilli stöđubaráttu. En smátt og smátt náđu heimamenn stjórn á leiknum og byrjuđu ađ skapa sér fćri.
Á 28. mínútu fékk Magnús Bernhard Gíslason framherji Gróttu gott fćri eftir sendingu inn fyrir vörn HK frá Sölva Davíđssyni en skotiđ var laflaust og Ögmundur í marki HK átti ekki í erfiđleikum.

Vignir Benediktsson átti góđan skalla á 33. mínútu sem Ögmundur Ólafsson markmađur gestanna gerđi vel ađ verja. Fćriđ kom eftir ađ aukaspyrnu Sigurvins Ólafssonar utan af velli.

Ţađ kom í hlut HK ađ fá besta fćri hálfleiksins ţegar Hörđur Magnússon fékk sendingu á milli bakvarđar og miđvarđar Gróttu og komst einn í gegn. Ef ţađ hefđi ekki veriđ fyrir snilli Kristjáns Finnbogasonar hefđu gestirnir komist yfir.

Ţrátt fyrir góđ fćri voru engin mörk skoruđu í fyrri hálfleik. Gróttuliđiđ var ţó íviđ sterkara en náđi ekki ađ nýta sín fćri.

Tómas Ingi Tómasson, ţjálfari HK, hefur haldiđ góđa hálfleiksrćđu ţví lćrisveinar hans mćttu mun ákveđnari til leiks í seinni hálfleik. Ef Gróttumenn voru betri í fyrri hálfleik ţá er óhćtt ađ segja HK hafi veriđ beittari í ţeim seinni.

Ţađ tók ţá ekki langan tíma ađ skora fyrsta mark leiksins. Hörđur Magnússon fékk ţá boltann fyrir utan teig Gróttu og tók skot sem ratađi beina leiđ upp í ţaknetiđ. Frábćrt skot og algerlega óverjandi fyrir Kristján í marki Gróttu.

Ađeins ţremur mínútum síđar fengu gestirnir gott tćkifćri til ađ bćta viđ öđru marki. Guđmundur Hafsteinsson fékk ţá boltann eftir klafs fyrir utan teiginn og gerđi vel í ţví ađ koma sér í skotastöđu. Boltinn ratađi ţó ekki inn heldur í stöng og heimamenn heppnir ađ vera ekki tveimur mörkum undir.

Ţađ var ekki fyrr en á 80. mínútu sem annađ mark leiksins leit dagsins ljós. Ögmundur markmađur HK fer út úr teig og reynir ađ skýla boltanum út af en Dan Howell, sem ţá var kominn inn sem varamađur, vinnur boltanum af honum, leikur á einn varnarmann HK og rennir boltanum í netiđ. Frábćrt einstaklingsframtak hjá Dan sem ţarna skorađi í öđrum leiknum í röđ en Ögmundur leit kjánalega út eftir atvikiđ.

Eftir jöfnunarmarkiđ áttu gestirnir meira inni. Hörđur Magnússon lék niđur ađ endalínu Gróttu og gaf boltann fyrir beint á hausinn á Jónasi Grana Garđarssyni sem skallađi ađ marki Gróttu. Aftur var ţađ snilli Kristjáns Finnboga sem kom í veg fyrir ađ HK kćmist yfir.

En Kristján Finnboga gat ţó ekki komiđ í veg fyrir sigurmark HK á 86. mínútu. Títtnefndur Hörđur Magnússon tók ţá hornspyrnu sem Einar Marteinsson gerđi vel ađ skalla í net heimamanna.

Grótta reyndi ađ sćkja ţađ sem eftir lifđi leiks en náđi ekki ađ skapa sér nein fćri. Leiknum lauk ţví međ 2-1 sigri HK.

Allt í allt var leikurinn hin besta skemmtun. Bćđi liđ einbeittu sér ađ ţví ađ spila góđa knattspyrnu og útkoman var fjölmörg fćri. HK gerđu vel ađ landa ađ sigri en heimamenn geta veriđ ósáttir međ ađ ná í ţađ minnsta ekki jafntefli.
Liđ Gróttu í leiknum:
 
Kristján Finnbogason, Hrafn Jónsson, Vignir Benediktsson, Knútur Rúnar Jónsson, Einar Bjarni Ómarsson, Hafsteinn Bjarnason (Ólafur Páll Johnson '72), Bragi Árnason, Sigurvin Ólafsson, Pétur Már Harđarson (Elvar Örn Arnţórsson 65), Sölvi Davíđsson, Magnús Bernhard Gíslason (Dan '51)
 
Ónotađir varamenn: Kjartan Ólafsson og Grétar Ali Kahn
 
Nćsti heimaleikur okkar manna er nćstkomandi laugardag ţegar liđiđ fer austur á firđi og leikur viđ Fjarđarbyggđ. Í vikunni ţar á eftir verđur leikiđ viđ Ţrótt á  Valbjarnarvelli í VISA-bikarnum og nćsti heimaleikur verđur svo ađ tveimur vikum liđnum ţegar Fjölnismenn koma í heimsókn laugardaginn 5. júní.


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síđu:



fotbolti3
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.