Nýjustu úrslit

Þróttur - Grótta: 3 - 1

Knattspyrna - Mfl. karla

14.6.2010

Grótta og Þróttur áttustu við á Valbjarnarvelli í Laugardalnum nú fyrr í kvöld. Aðstæður voru ágætar þó svo að Valbjarnarvöllur hefur litið betur út. Ef eitthvað má setja út á gestrisni Þróttara þá er það helst að hátalarkerfi þeirra er það hæsta sem undirritaður hefur nokkurn tímann heyrt og var við það að gera alla stuðningsmenn Gróttu heyrnalausa.

En nóg um það. Grótta mætti með sterkt lið í Laugardalinn. Þó voru þrjár breytingar á liðinu frá sigurleiknum á móti Fjarðarbyggð. Kristján Finnboga, Hrafn Jónsson og Einar Bjarni fengu hvíld á bekknum, en þeir tveir fyrrnefndu áttu við smávægileg meiðsla að stríða, þó má búast við því að þeir verði búnir að jafna sig fyrir leikinn á sunnudaginn. Annars er það að frétta úr leikmannahóp Gróttu að Garðar Guðnason er að við það að jafna sig eftir að hafa fengið högg á ristina í fyrsta leik tímabilsins og þá er Bjarni Jakob Gunnarsson byrjaður aftur að æfa eftir þráðlát meiðsl aftan í læri.

Víkjum okkur þá að leiknum. Grótta byrjaði leikinn ágætlega og jafnræði var með liðunum fyrri hluta hálfleikssins. Elvar Freyr fékk til dæmis tvö ákjósanleg færi í sömu sókninni en Þróttarar náðu að kasta sér fyrir skotinn í bæði skiptin. En þegar líða tók á leikinn fóru Þróttara að ná meira valdi á leiknum.

Fyrsta mark leiksins var þó Gróttumanna og eflaust eitt af þeim skrautlegri sem verða skoruð í sumar. Dómarinn stoppar leikinn á 36. mínútu eftir að Elvar Arnþórsson hafði fengið högg á höfuðið. Dómarinn dæmdi þó ekki brot heldur stoppaði einungis leikinn en þegar hann gerði það voru Þróttarar með boltann. Eftir að búið var að hlúa að meiðslum Elvars var því dæmt dómarakast til að koma leiknum aftur í gang. Óskrifuð regla í þannig tilvikum er að senda boltann aftur á það lið sem var með boltann þegar dómarinn stöðvaði leikinn, í þessu tilviki hefði því Grótta átt að senda á Þrótt. En í staðinn fyrir það keyrði Elvar áfram eftir dómarakastið, lék á tvo varnarmenn Þrótts sem voru ekki alveg með á nótunum og lagði boltann í netið. Elvar fagnaði markinu en aðrir leikmenn og dómari voru ekki alveg vissir hvernig þeir áttu að bregðast við. Afráðið var að jafna um fyrir mistökin og Halldór Arnar Hilmisson fékk að ganga með boltann frá miðjunni inní mark Gróttu. Prúðmannlega gert hjá Gróttu.

Staðan eftir þessa undarlegu uppákomu því 1-1 og þannig var hún í hálfleik.

Seinni hálfleikur Gróttu var því miður ekki nógu góður. Þróttarar voru með völdin á vellinum en Grótta reyndi að beita skyndisóknum. En eftir að Andrés Villhjálmsson kom svo Þrótti yfir á 69. mín með góðu skoti fyrir utan teig var ekki að spyrja hvernig leikurinn mundi enda.

Á 80. mín bættu Þróttara svo við sínu þriðja marki. Þar var að verki Halldór Hilmisson sem kom boltanum í netið eftir góða fyrirgjöf utan frá hægri kanti. Lokatölur því 3-1 fyrir heimamenn.

Grótta sýndi ágæta tilburði í leiknum en það virtist vanta neista til að klára þennan leik. Þó ber að fagna að Grétar Ali Khan virðist vera nálgast sitt fyrra Gróttu form og stóð hann sig vel í leiknum. Einnig er rétt að minnast á þátt Kjartans Ólafssonar sem var öruggur á milli stanganna og gat ekki mikið gert við mörkunum.

Næsti leikur Gróttu er á sunnudaginn en þá mæta Fjölnismenn í heimsókn út á Nes. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Fjölnir unnu í kvöld úrvalsdeildarlið Hauka í bikarnum og eru á góðu skriði í deildinni. Grótta þarf því á stuðningi áhorfenda að halda til landa sigri.

Byrjunarlið Gróttu í kvöld: Kjartan Ólafsson, Knútur Rúnar Jónsson, Grétar Ali Khan, Ólafur Páll Johnsson, Sölvi Davíðsson, Elvar Freyr Arnþórsson, Hafsteinn Bjarnason, Daniel Howell (Viggó Kristjánsson, 83.), Guðmundur Bragi Árnason (Sigurvin Ólafsson, 46.), Pétur Már Harðarson (Einar Bjarni Ómarsson, 58.), Vignir Benediktsson

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.