Nýjustu úrslit
Víkingur - Grótta: 1 - 0
Knattspyrna - Mfl. karla
Um síðustu helgi fór fram áttunda umferð 1. deildar karla í fótbolta og fóru okkar menn í heimsókn í Fossvoginn og spiluðu við lið Víkings. Fyrir leikinn bjuggust flestir við sigri heimamanna sem sátu í 4. sætinu á meðan Gróttuliðið var í því næst neðsta. Leikurinn fór fjörlega af stað og eftir aðeins 10 mínútna leik var Grótta nálægt því að komast yfir. Þar var að verki framherjinn Magnús Bernhard Gíslason sem stakk sér inn fyrir vörn Víkinga en náði ekki að skora. Á 21. mínútu leit fyrsta mark leiksins dagsins ljós þegar fyrrum landsliðs- og atvinnumaðurinn Helgi Sigurðsson skoraði úr víti. Helgi fiskaði vítið sjálfur en þar settu margir spurningamerki við dómara leiksins sem nokkrum sekúntum áður hafði sleppt augljósri aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Víkinga.
Fátt markvert gerðist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en leikurinn einkenndist af miðjumoði og rólegum sóknum á báða bóga. Í seinni hálfleik mætti Gróttuliðið grimmara til leiks og setti töluverða pressu á lið Víkings. Fljótlega fengu þeir Garðar Guðnason og Magnús Bernhard sitt færið hvor og voru nálægt því að jafna. Við þessa pressu opnaðist leikurinn talsvert og beittu Víkingar hættulegum skyndisóknum. Kjartan Ólafsson, markmaður Gróttu, varði í tvígang glæsilega frá fyrrum samherja sínum Daníel Hjaltasyni og hélt Gróttu þannig inni í leiknum. Áður en yfir lauk fékk Gróttuliðið nokkur færi til að jafna metin en boltinn hreinlega vildi ekki inn framhjá sterkum markverði Víkinga og naumt tap því niðurstaðan.
Við þennan ósigur duttu okkar menn niður í botnsætið og þurfa að dúsa þar, a.m.k. fram í næstu umferð. Þrátt fyrir tapið var ýmislegt jákvætt í leik Gróttuliðsins sem til að mynda skapaði sér mörg góð færi í leiknum. Í síðustu þremur leikjum hefur liðið á köflum sýnt góðan leik og því mikilvægt að nýta sér það í næstu leikjum.
Einnig er endurkoma Bjarna Jakobs Gunnarssonar í liðið mikið fagnaðarefni en þessi baráttuglaði varnarmaður átti stórgóðan leik á laugardaginn. Enric Már du Teitsson kom inná í síðari hálfleik og lék sinn fyrsta leik í sumar.

