Nýjustu úrslit

Grótta - ÍA: 1 - 4

Knattspyrna - Mfl. karla

8.7.2010

Grótta tók á móti ÍA í 9. umferđ 1. deildar karla á Seltjarnarnesi á fimmtudaginn. Bćđi liđ voru viđ botninn og ţurftu nauđsynlega á stigum ađ halda. Grótta međ 4 stig í 12. sćti og ÍA í ţví 10. međ 9 stig. Leikurinn fór fram í grenjandi rigningu en annars voru ađstćđur góđar.

Leikurinn var rétt orđinn 5 mínúta gamall ţegar fyrsta markiđ leit dagsins ljós. Ólafur Valur Valdimarsson nýtti sér ţá slćm mistök í vörn Gróttu ţegar sending frá aftasta varnarmanni Gróttu til markmanns mistókst međ ţeim afleiđingum ađ Ólafur komst einn á móti markmanni Gróttu, Kjartani Ólafssyni, lék á hann og sendi boltann í autt netiđ.

Eftir markiđ tók Grótta völdin og sýndi oft lipra takta áđur en ţeir náđu ađ jafna leikinn á 12. mínútu. Ţá stangađi Magnús Bernhard Gíslason boltann inn eftir hornspyrnu frá Ólafi Páli Johnson.

Grótta hélt áfram ađ ţrýsta á Skagamenn eftir ađ hafa jafnađ og voru til alls líklegir. Á 20. mínútu átti Pétur Már Harđarson til dćmis gott skot eftir fallega sókn Gróttu en inn vildi boltinn ekki.

Ţađ var ţví gegn gangi leiksins ađ Skagamenn komust aftur yfir. Ţeir fengu ţá aukaspyrnu hćgra megin á miđjum vallarhelmingi Gróttu og sendu boltann á fjćrstöng. Boltinn virtist vera ađ leka útaf ţegar einn leikmađur ÍA nćr ađ senda hann aftur ţvert fyrir markiđ, á fjćrstöng biđu svo tveir Skagamenn og ţađ var Andri Júlíusson sem kom boltanum yfir línuna.

Grótta hélt ţó áfram ađ sćkja og 38. mínútu átti Magnús Bernhard Gíslason frábćrt skot langt utan ađ velli sem endađi í ţverslá gestanna.

En eins og í laginu voru ţađ Skagamenn sem skoruđu mörkin. Á 43. mínútu vann Ólafur Valur Valdimarsson boltann á vallarhelmingi Gróttu og geystist upp vinstri vćnginn og skaut boltanum ađ marki og ađ lokum fór boltinn í markiđ en áđur var boltinn búinn ađ fara í stöngina, í markamann og varnarmann Gróttu. En inn fór hann og ţađ er ţađ sem skiptir öllu máli.

Skömmu síđar var flautađ til hálfleiks og stađan 3-1 fyrir gestina í rigningunni á Nesinu.

Á 62. mínútu náđi svo Hjörtur Hjartarson ađ krćkja í vítaspyrnu eftir ađ brotiđ var á honum. Á punktinn fór Arnar Már Guđjónsson. Kjartan í marki Gróttu var nálćgt ţví ađ verja en inn fór boltinn.

Nóg var fćrum undir lok leiksins. Miđjan virtist vera horfinn hjá báđum liđum og skiptust ţau á ađ sćkja og fengu ágćtis fćri án ţess ţó ađ ná skora. Lokatölur ţví 4-1 fyrir gestina.

Leikurinn var mjög opinn og skemmtilegur áhorfs. Bleytan setti vissulega mark sitt á leikinn ţar sem boltinn rann hratt á gervigrasinu. Skagamenn voru ţéttir tilbaka og ógnandi fram á viđ og nýttu sín fćri vel. Gróttumenn spiluđu oft á tíđum ágćtis knattspyrnu en ţađ virtist vanta kraft til ţess ađ klára fćrin.

Međ ţessu tapi situr Grótta eftir á botninum međ 4 stig.

Liđ Gróttu: Kjartan Ólafsson, Grétar Ali Khan, Knútur Rúnar Jónsson, Bjarni Jakob Gunnarsson, Hrafn Jónsson, Sölvi Davíđsson, Pétur Már Harđarson, Ólafur Páll Johnson, Steindór Oddur Ellertsson, Garđar Guđnason, Magnús Bernhard Gíslason.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síđu:



handbolti2
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.