Nýjustu úrslit
HK - Grótta: 2 - 2
Knattspyrna - Mfl. karla
14. umferđ Íslandsmótsins fór fram í gćrkvöldi ţegar Grótta lék viđ liđ Handknattleiksfélag Kópavogs á útivelli. Fyrir leikinn voru okkar menn í 10. sćti međ 12 stig á međan HK var í ţví 7. međ 15. Leikurinn reyndist hin besta skemmtun og endađi međ 2-2 jafntefli ţar sem Gróttuliđiđ var sterkari ađilinn í leiknum og spilađi á köflum glimrandi knattspyrnu. Fréttaritari Gróttusport var á leiknum og fylgdist vel međ gangi mála.
Ţađ blés ekki byrlega fyrir okkar menn til ađ byrja međ en eftir ađeins 8 mínútur skoruđu heimamenn í HK fyrsta markiđ. Ţar var ađ verki gamli refurinn Jónas Grani Garđarsson sem skorađi úr opnu fćri eftir mikiđ klafs í teig Gróttu. Strákarnir létu ţetta ekki á sig fá heldur blésu til stórsóknar međ ţá Magnús Bernhard Gíslason og Sölva Davíđsson fremsta í flokki.
Á 27. mínútu náđi Gróttuliđiđ ađ jafna metin og var ţađ mark einkar glćsilegt. Pétur Már Harđarson átti ţá góđa sendingu inn fyrir vörn HK á bakvörđin Einar Bjarna Ómarsson sem umsvifalaust sendi boltann fyrir markiđ ţar sem Dan Howell kom ađvífandi og skorađi örugglega. Eftir markiđ hélt stórsóknin áfram og hafđi Grótta yfirburđi á vellinum ţađ sem eftir lifđi hálfleiks. Magnús komst nćst ţví ađ skora á 35. mínútu međ skoti úr miđjum teignum sem fór hárfínt yfir mark heimamanna.
Í síđari hálfleik komust HK-ingar betur inn í leikinn og fengu fljótlega gott fćri ţegar Hörđur Árnason slapp einn inn fyrir vörn Gróttu en skaut framhjá. Á 59. mínútu gerđist umdeilt atvik ţegar Sölvi Davíđsson slapp einn inn fyrir vörn HK eftir góđa stungusendingu. Davíđ Magnússon, miđvörđur HK, sá ţann kost vćnstan ađ rífa Sölva niđur en hlaut ađeins ađ launum gult spjald frá norksa gestadómaranum Hĺvard Hakestad. Pétur Már tók aukaspyrnuna en skaut rétt yfir. Rétt áđur en ţetta gerđist varđ Grótta fyrir áfalli ţegar Magnús Gíslason ţurfti ađ yfirgefa völlinn vegna meiđsla aftan í lćri.
Á 63. mínútu var Sölvi aftur á ferđinni ţegar hann dansađi međ boltann inn í vítateig HK og náđi góđu skoti í fjćrhorniđ sem endađi međ marki og Grótta komiđ yfir í leiknum. Eftir markiđ skiptu HK-ingar tveimur ungum og sprćkum leikmönnum inn á náđu vopnum sínum í kjölfariđ. Ţeir settu nokkra pressu á Gróttuliđiđ og voru oft nálćgt ţví ađ komast í ákjósanleg marktćkifćri. Fyrir vikiđ náđi Grótta góđum skyndisóknum en oft vantađi ađeins herslumuninn ađ koma boltanum í netiđ.
Pressa HK-inga bar árangur ţegar ţeir fengu dćmt víti á 85. mínútu eftir barning í teignum. Jónas Grani tók spyrnuna og skorađi örugglega fram hjá Stjána í markinu. Bćđi liđ fengu tćkifćri til ađ tryggja sér sigurinn undir lokin. Á 90. mínútu varđi Ögmundur Ólafsson af stuttu fćri frá Pétri Má en hann hafđi ţá snúiđ af sér ţrjá varnarmenn HK inni í teignum. Á lokaandartökum leiksins skall hurđ nćrri hćlum hjá Gróttuliđinu ţegar Axel Birgisson komst einn á móti marki en skaut, til allrar hamingju fyrir okkur, fram hjá markinu.
2-2 jafntefli ţví niđurstađan ţar sem bćđi liđ hefđu getađ náđ í stigin ţrjú. Gróttuliđiđ var ţó ađ spila betur stćrstan hluta leiksins og á köflum var leikur liđsins frábćr. Sölvi, Magnús og Pétur voru baneitrađir í fremstu víglínu en sá síđastnefndi var líklega ađ spila sinn besta leik í sumar. Ólafur Páll og Bragi voru öflugir inni á miđjunni međ Dan fyrir framan sig og svo átti Einar Bjarni marga hćttulega spretti um vinstri vćnginn.
Nćsti leikur Gróttu er laugardaginn 7. ágúst ţegar Fjarđabyggđ kemur í heimsókn á Gróttuvöll. Ţetta verđur sex stiga leikur af dýrari gerđinni en Austfirđingar eru einu sćti og tveimur stigum á eftir Gróttu í 1. deildinni.
Liđ Gróttu í leiknum:
Kristján Finnbogason, Hrafn Jónsson, Bjarni Jakob Gunnarsson, Einar Bjarni Ómarsson (Grétar Ali Khan '76), Guđmundur Bragi Árnason, Ólafur Páll Johnson, Dan Howell, Sölvi Davíđsson, Pétur Már Harđarson, Magnús Bernhard Gíslason (Elvar Freyr Arnţórsson '54)
Ónotađir varamenn: Kjartan Ólafsson, Ásgrímur Sigurđsson, Hafsteinn Bjarnason

