Nýjustu úrslit
Grótta - Fjarðabyggð: 3 - 1
Knattspyrna - Mfl. karla
Grótta mætti Fjarðabyggð í miklum fallbaráttuslag í 1.deildinni í dag. Fyrir leikinn var Grótta með 13 stig í 10. sæti deildarinnar en Fjarðabyggð með 11 stig í 11. sæti. Leikurinn í dag var því einkar mikilvægur enda bæði lið að reyna að forðast fall. Það voru Gróttumenn sem voru fyrri til að skora í leiknum. Á 16. mínútu átti Kristján Finnbogason langt útspark sem barst af Daniel Howell í varnarmann Fjarðabyggðar og þaðan inn fyrir vörnina, þar lúrði Viggó Kristjánsson og kláraði færið örugglega. Þess má geta að Viggó Kristjánsson er fæddur 1993 og er einn efnilegasti leikmaður Gróttu þessa stundina.

