Akademían
1.tíminn í akademíunni
Íþrótta- og heilsuakademía Gróttu
Í dag, föstudag, var fyrsti tíminn í akademíunni. Farið var yfir helstu atriðin fyrir veturinn og skipulagið. Krakkarnir fengu stundaskrá fyrir veturinn í akademíunni og blað yfir innihald allra tíma og verkefnaskil. Stundaskránna má sjá hérna. Skipulag allra tíma má sjá hér.
Verkefni 1 var kynnt fyrir nemendum en því skal skila í næstu viku.
Verkefni 1: Markmiðssetning og hugarfar
Skrifa niður á blað (tölvu eða handskrifa) samviskusamlega
- Í hverju ætla ég að vinna í vetur? (hvaða atriði ætla ég að vinna í til að gera mig vetri í íþróttinni minni?)
- Hver er styrkur minn í íþróttinni? 5 atriði
- Hver er veikleiki minn í íþróttinni? 4 atriði
Skila þessu í næsta bóklega tíma í næstu viku.

