Fimleikadeild
Vetrarstarfið hafið - minnt á greiðslu iðkendagjalda
Fimleikadeild
Æfingar hófust skv. stundaskrá miðvikudaginn 1.september. Þjálfarar hafa sent út tilkynningar í tölvupósti með upplýsingum um æfingatíma. Vinsamlegast athugið ekki er unnt að færa iðkendur milli flokka, nema í undantekingartilfellum og þá í samráði við yfirþjálfara. Skráningu lauk 25.ágúst, og er nú fullt í nær alla hópa. Berist frekari skráningar fara þær á biðlista.
Vinsamlegast gangið frá greiðslu iðkendagjalda sem fyrst. Tekið verður á móti greiðslum í íþróttahúsi Gróttu 1.og 2.september kl 17-19. Auk þess er hægt að greiða iðkendagjöld á skrifstofu Gróttu í íþróttahúsi, eða með símgreiðslu. Veittur er 10% afsláttur ef æfingagjöld fyrir allan veturinn eru staðgreidd. Einnig er veittur 20% systkinaafsláttur af ódýrara gjaldi fyrir tvö eða fleiri systkini í fimleikadeild. Við minnum á tómstundastyrk Seltjarnarnesbæjar og Frístundakort Reykjavíkurborgar.

